„Ég lít svo á að það sé hlutverk okkar þingmanna Reykvíkinga að hugsa um Reykvíkinga,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavíkurkjördæmi norður. Kveður hann eðlilegt að mjög margt brenni á fólki.
Guðlaugi finnst skipta máli að vera í nánum tengslum við sína umbjóðendur. „Ef þingmaðurinn í þínu kjördæmi er ekki að hugsa um það sem að þér snýr, hver á þá að gera það?“ spyr hann.
Guðlaugur segir hlutverk stjórnmálamanna meðal annars vera að horfa fram á veginn og að gjarnan reyni hann að hugsa hvernig hann vilji sjálfur að kjörnir fulltrúar séu.
Segir hann fólk vera búið að fá nóg af miklu reglugerðafargani, háum sköttum og því að hið opinbera sé úti um allt og alls staðar.
Hann segir samgöngumálin stóru málin í kjördæminu og hefur áhyggjur af heilbrigðismálum og menntamálum. Þá segir hann umhverfis- og orkumálin gríðarlega mikilvæg.
„Sem betur fer höfum við náð árangri þar en ef við hikstum eitthvað lendum við í miklum vanda.“