Dr. Birna G. Ásbjörnsdóttir er einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar þegar kemur að heilbrigðri þarmaflóru og heilsu í gegnum meltingarveginn. Bætiefnin frá Jörth eru svörin og lausnin hennar við svo mörgu af því sem fólk hefur leitað til hennar með síðustu þrjá áratugina.
„Nú þegar allir eru að borða páskaegg þá vil ég að fólk njóti þess og borði með meðvitund og athygli en hugi á sama tíma að þarmaflórunni og mikilvægi meltingarvegarins,“ segir Birna G. Ásbjörnsdóttir eigandi Jörth en hún lauk doktorsgráðu í heilbrigðisvísindum frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í næringarlæknisfræði frá Surrey-háskóla, meistaranámi við Oxford-háskóla og var gestarannsakandi við Harvard Medical School um tíma. „Það er mjög mikilvægt að eiga einhverja leið til að styrkja meltingarveginn þegar við leyfum okkur að borða sykur,“ segir hún.
„Mér finnst fólk mjög móttækilegt um leiðirnar sem í boði eru til að leyfa náttúrunni að græða okkur. Heilbrigð þarmaflóra er ein af forsendum fyrir betri líðan, bæði líkamlega og andlega, og þú getur bætt flóruna þína með hágæða náttúrulegum bætiefnum sem ég hef verið að þróa um skeið,“ segir Birna sem hefur haldið námskeið og verið með fræðslu um þarmaflóruna í tæplega þrjá áratugi.
„Ég byrjaði að tala um þarmaflóruna fyrir mörgum áratugum þegar málefnið var ekki mikið í umræðunni hér heima og erlendis, og hafa viðtökurnar alltaf verið miklar og góðar. Þarmaflóran hefur áhrif á meira en bara meltinguna, hún hefur áhrif á okkur bæði andlega og líkamlega.“
Sjálf lifir Birna eftir þeirri heimspeki sem Jörth boðar. Hún býr í Smiðshúsum á Eyrarbakka sem er einstaklega fallegt hús í miðri náttúruparadís ásamt eiginmanni sínum, Guðmundi Ármanni Péturssyni. „Jörth varð til á sunnudagsmorgni þar sem við vorum, eins og svo oft áður, að velta fyrir okkur tengslum mataræðis og heilsu og höfðum verið að skoða bætiefni fyrir meltinguna en okkur fannst alltaf eitthvað vanta. Guðmundur er með meistaragráðu í umhverfisfræðum en hann er einnig rekstrarfræðingur og menntaður í lífrænum landbúnaði. Það má því segja að þekking okkar, persónulegur bakgrunnur og sameiginlegur áhugi okkar á náttúrunni og síðast en ekki síst löngun til að láta gott af okkur leiða hafi myndaði jarðveginn sem Jörth spratt upp úr,“ segir Birna.
Þarmaflóran hefur áhrif í allar áttir
Hvað getur þú sagt okkur um bætiefnin sem þú hefur búið til?
„Í þá tæplegu þrjá áratugi sem ég hef starfað við ráðgjöf og fræðslu hef ég heyrt talsvert margar umkvartanir og um alls konar heilsufarsvandamál og það sem mér fannst standa upp úr var hvað margir voru með einhver óþægindi út frá meltingarveginum.
Það var upphaflega kveikja þess að fyrsta varan okkar, Abdom-bætiefnið, kom á markaðinn. Rótin að vanda okkar er svo oft út frá meltingarveginum okkar. Abdom-bætiefnið styrkir meltingarveginn, eflir þarmaflóruna og kemur jafnvægi á meltinguna. Það er búið til úr hágæðahráefnum sem græða þig innan frá, eitt skref í einu. Heilbrigður meltingarvegur ásamt öflugri meltingarflóru er svo grunnurinn að góðri heilsu.“
Mælir þú þá með Abdom fyrir þau sem fá magaþembu og verða svöng strax eftir að hafa borðað súkkulaði?
„Það getur verið mjög góð hugmynd. Ef maður fær þessi einkenni sem þú lýsir eftir að borða sykur þá bendir það til þess að þarmaflóran mætti vera öflugri. Eðlilega þegar maður borðar mikið af sætindum þá hefur það áhrif á blóðsykurinn. Þegar maður er hraustur þá finnur maður ekki svo mikið fyrir þessum sveiflum. Ef hins vegar eitthvað ójafnvægi er í gangi hjá manni þá eru meiri líkur á að blóðsykurinn taki stærri sveiflur. Fari hátt upp eftir sykurinn, þá dælir líkaminn út insúlíni og þegar það gerist þá fellur blóðsykurinn niður fyrir það stig sem hann er vanalega í og þá verður maður svangur og vantar eitthvað til að hífa hann upp aftur. Þá leita margir í sykur aftur og blóðsykurinn rýkur upp aftur og þetta jójó-ástand heldur áfram.“
„Þarmaflóran hefur áhrif í allar áttir. Hún hefur áhrif á efnaskiptin og hormónabúskapinn, ónæmi- og taugakerfið, og hvað við gerum við það sem fer ofan í meltingarveginn.“
Bætiefni sem eflir ónæmiskerfið
Eftir að Abdom kom á markaðinn komu í framhaldinu fleiri bætiefni frá Jörth, sem dæmi Immun, Nerv, Dorm og Focuz. „Þegar við erum að eiga við afleiðingar af viðkvæmum meltingarvegi, og við erum búin að laga hann eða koma honum í jafnvægi þá upplifa margir ónæmiskerfið ekki alveg í sínu toppformi. Það myndi lýsa sér í óþarflega mörgum sýkingum og umgangspestum, öndunarfærasýkingum og kvefi svo dæmi sé tekið. Þá getur verið gott að taka inn Immun sem er mjög öflug vara sem eflir ónæmiskerfið með öflugri blöndu af gerjaðri broddmjólk, lysozyme og ovotransferríni. Broddmjólkin ver nýfædd afkvæmi fyrir sýkingum og sjúkdómum. Lysozyme er lífvirkt ensím sem finnst náttúrulega í ýmsum líkamsvessum eins og tárum og munnvatni og hefur öfluga sýklavarnareiginleika. Lactóferrín er fjölvirkt prótein sem finnst meðal annars í broddmjólk og öðrum líkamsvessum. Það bindur járn og hamlar vöxt baktería. Ovótransferrín er prótein sem finna má í eggjahvítu sem hindrar útbreiðslu sýkla.“
„Immun er því örveru- og bólgueyðandi og styður varnir líkamans á sama tíma og það ver þig gegn sýkingum og eykur almenna vellíðan. Broddmjólkin græðir og byggir upp heilbrigðan meltingarveg. Svo eru öflug vítamín og steinefni í Immun, svo sem sink, A-vítamín og bíótín sem viðhalda heilbrigðri slímhúð í öndunarfærum, meltingarvegi og þvagfærum. Þetta bætiefni má nota daglega en er sérstaklega mikilvægt á álagstímum eða til að verjast umgangspestum. Rannsóknir sýna að þetta bætiefni er bæði fyrirbyggjandi en einnig breiðvirk vörn og er sérstaklega gott fyrir þá sem eru með krónísk vandamál og langvinnar bólgur. Immun getur verið vatnslosandi og við sem tökum bætiefnið finnum þessi bólgumildandi áhrif þegar það er tekið að staðaldri.“
Fyrir þá sem vilja efla taugakerfið þá segir Birna bætiefnið Nerv vera kraftmikið og veita jafnvægi og ró með blöndu af gerjaðri broddmjólk, tríbúteríni, góðgerlum, þíamíni og bíótíni. „Efnin í þessu bætiefni eru nauðsynleg fyrir okkur þegar við erum ekki með góða þarmaflóru því þá erum við ekki með nóg af örverum sem framleiða þessa efnasamsetningu. Nerv gagnast bæði þeim sem eru viðkvæmir í meltingarveginum, þeim sem eru að blása upp af öllu sem þeir eru að borða en geta ekki tekið inn góðgerla. Þetta er mildara bætiefni en margir hafa áður prófað en samt sem áður með mjög öfluga virkni.“
Birna segir áhugavert að verða vitni að því hvað viðkvæmur meltingarvegur getur verið nátengdur því að vera útsettur fyrir streitu. „Þess vegna taka margir viðskiptavina Jörth Nerv bætiefnið á álagstímum eða þegar mikil streita er í umhverfinu.
Dorm er hágæða bætiefni sem hjálpar þér að slaka á og ná betri svefngæðum. Með þurrgerjuðum íslenskum mysupróteinum, sérhannaðri örhjúpaðri góðgerlablöndu og amínósýrunum L-tryptófan og L-þeanín hjálpar Dorm þér að ná dýpri slökun ásamt betri endurheimt,“ segir Birna.
Heilsan það dýrmætasta sem við eigum
Tekur þú öll bætiefnin frá Jörth saman?
„Já, ég er í þeirri frábæru stöðu að geta tekið þau öll saman og finnst mér bætiefnin vinna mjög vel saman og vera breiðvirk þegar þau eru tekin þannig.
Ég hef þó alltaf á bakvið eyrað að það er dýrt fyrir hinn almenna viðskiptavin að kaupa öll bætiefnin og hef ég þá mælt með að byrja á einu eða tveimur tegundum í senn. Svo getur maður bætt við eða skipt á milli tegunda innan Jörth-bætiefnanna.
Það er þó mikilvægt að átta sig á því að heilsan er það dýrmætasta sem við eigum og þegar hún er ekki í lagi þá hefur það svo mikil áhrif á allt annað í lífinu. Þannig að fólk lítur kannski ekki á fjárfestingu í heilsunni öðruvísi en fjárfestingu í ferðalögum eða merkjavöru. Þetta kostar allt eitthvað og svo er bara spurningin hvaða áhrif það hefur á okkur,“ segir Birna.
Það getur verið gott að panta ráðgjöf hjá Birnu með hvaða bætiefni er best að taka miðað við þær áskoranir sem fólk er að fara í gegnum í lífinu hverju sinni. „Eins og ef manneskja sefur ekki er alltaf best að fást við svefnleysið áður en allt annað er skoðað, því það er svo mikilvægt að leysa úr svefnflækjum og sofa vel.“
„Öll bætiefnin mín miða að því að efla heilsuna í gegnum meltingarveginn. Líkt og Focuz sem er öflugt bætiefni, það eykur athyglina og býr til skýra hugsun með öflugri blöndu af þurrgerjuðum mysupróteinum, sérhannaðri míkróhjúpaðri góðgerlablöndu ásamt L-týtósíni og B-vítamínum.“
„Við þurfum að borða alla liti jurtaríkisins“
Hvernig mataræði mælir þú með að fólk borði með Jörth-bætiefnunum?
„Ég mæli með því að fólk borði reglulega. Líkaminn okkar elskar rútínu og reglu. Við erum ekki öll eins og sumum hentar að borða morgunmat á meðan öðrum hentar það ekki. Flestir þurfa að huga að því að borða meðal annars prótein og fitu í öll mál. Ef maður er að borða of mikið af kolvetnum, þá er maður í rauninni að valda þessum blóðsykursveiflum sem getur verið flókið að koma sér úr.“
„Eitt gott dæmi getur verið að borða hafragraut á morgnana sem er hollur og góður matur. Hann hentar ekki öllum því sumir verða bara glorhungraðir og máttlausir klukkutíma eftir að borða hann. En með slurk af rjóma út á hafragrautinn og hnetur og fræ, þá er maður búinn að breyta miklu og fá prótein og fitu í máltíðina. Egg geta einnig verið góð.
Varðandi þarmaflóruna, þá er alltaf best að huga að fjölbreytni og reyna að borða alla liti jurtaríkisins. Rannsóknir sýna að borða 30 tegundir af fæðutegundum úr jurtaríkinu eða meira á viku reynist gott til að efla og byggja upp þarmaflóruna okkar.“
„Við þurfum því alltaf að vera á höttunum eftir nýjum tegundum af grænmeti, ávöxtum, hnetum, fræjum og korni. Við megum ekki bara festast í eplum, appelsínum og bönunum, agúrkum og tómötum. Við þurfum að fara og kaupa okkur peru, melónu og bara alls konar grænmeti og að rótera því sem við erum að borða yfir vikuna. Ég trúi því að allt ójafnvægi byrji í meltingarveginum og tel ég ekki góða blöndu að borða lélega fæðu og að taka inn bætiefnin frá Jörth. Við gerum ekkert eingöngu með bætiefnum en getum svo sannarlega bætt við og hjálpað til, eflt og styrkt ónæmiskerfið, taugakerfið og meltinguna, með góðum bætiefnum.
Það er einnig mikilvægt að borða gerjað og sýrt mataræði, eins og súrkál og kombucha og hreinar mjólkurafurðir sem eru sýrðar, sem dæmi gríska jógúrt.“
„Við gerðum sem dæmi rannsókn á vegum Háskóla Íslands þar sem við vorum með þrjá hópa af heilbrigðum einstaklingum á aldrinum 50 til 70 ára. Einn hópurinn fékk Abdom-bætiefnið, annar hópurinn bætti við sig sex skömmtum af gerjuðu mataræði á dag og þriðji hópurinn var viðmiðunarhópur sem breytti engu. Það voru teknar blóðprufur og saursýni fyrir rannsóknina á meðan hún átti sér stað og svo eftir. Eftir 2-3 mánuði höfðu bólguþættir í blóðinu lækkað í hópnum sem tók Abdom og hjá hópnum sem hafði aukið neyslu af gerjuðum mat. Það voru engar breytingar hjá viðmiðunarhópnum. Það sama átti við um þarmaflóruna, hún var heilbrigðari í þessum tveimur hópum á meðan viðmiðunarhópurinn breyttist ekki.
Þessi rannsókn segir okkur hvað gerir okkur gott en það skal tekið fram að það er mjög mikil vinna að borða sex skammta af gerjuðum mat á dag og ef þú getur gert bæði; aukið við gerjaðan mat og tekið Abdom-bætiefnið þá verður þú líklegast í mjög góðum málum að sögn vísindanna,“ segir Birna G. Ásbjörnsdóttir, annar stofnenda Jörth að lokum.