Ræktunarsamband Flóa og Skeiða er eitt elsta verktakafyrirtæki landsins. Guðmundur Á. Böðvarsson framkvæmdastjóri segir reynslumikið starfsfólk, fjölbreyttan búnað og jarðborvélar geta skipt sköpum í stærri verkefnum.
„Það er margt í gangi hjá okkur, við höfum meira og minna verið að bora fyrir fiskeldisfyrirtækið First Water í tvö ár og erum enn að. Í heildina höfum við borað um 70 holur þar. Undanfarna mánuði höfum við verið að bora nokkrar vel gæfar heitavatnsholur fyrir Veitur á höfuðborgarsvæðinu en þar fundust ný lághitasvæði á Geldinganesi og Kjalarnesi. Talsvert af heitu vatni fannst í Reykholti fyrir skömmu og enn meira á Laugarvatni en þar boruðum við eina kraftmestu lághitaholu sem við höfum borað. Við höfum undanfarin ár verið að uppfæra og fjölga tækjum til að svara kalli markaðarins og fyrir skömmu bættist bor í hópinn hjá okkur. Í heildina erum við þá með 10 bora hjá fyrirtækinu.
Stærst hjá okkur núna er þó borun á tveimur holum fyrir Norðurorku í samstarfi við Jarðboranir sem er móðurfélag okkar. Þarna eru um tvær 1.500 metra holur og nokkuð flóknar og því gott að hafa sérfræðingana hjá Jarðborunum með í för,“ segir Guðmundur Á Böðvarsson, framkvæmdastjóri Ræktunarsambands Flóa og Skeiða.
Fyrirtækið er eitt elsta verktakafyrirtæki landsins og segir Guðmundur gott að standa á þeim góða grunni. „Ræktunarsamband Flóa og Skeiða var stofnað í janúar árið 1946 af bændum í hreppunum hér í kringum Selfoss og tilgangur félagsins var að kaupa tæki til að þurrka upp ræktunarland til þess að hægt væri að rækta tún. Seinna varð Ræktunarsambandið að jarðvinnuverktaka sem stækkaði hægt og örugglega og jarðborar bættust í hópinn á 9. áratug síðustu aldar. Frá árinu 2014 hefur Ræktunarsamband Flóa og Skeiða verið borverktaki eftir að jarðvinnudeild og klæðningardeild voru seldar út úr fyrirtækinu,“ segir Guðmundur.
Ræktunarsambandið hefur stækkað hægt og sígandi en þó nokkuð hratt undanfarin ár. „Við eigum því ansi mikið af búnaði til að klára verkefnin en ekki síður höfum við verið svo heppnir að vera með gott starfsfólk sem hefur verið hjá okkur árum saman og því komið með mikla reynslu sem er lykilatriði í svo sérhæfðum bransa. Eftir að Jarðboranir keyptu Ræktunarsambandið höfum við svo fengið aðgang að mikilli reynslu og tækjabúnaði sem þar er til og gert okkur enn öflugri. Þessi bransi, eins og flestallur verktakabransi, er sveiflukenndur og því er gott að hafa þarna samstarf til að geta dempað sveiflur og fært tæki og mannskap á milli.
Hjá Jarðborunum er einnig mikil áhersla lögð á öryggis- og gæðamál sem við höfum reynt að taka upp enda er það sem skiptir á endanum öllu máli, að koma heil heim.“
Á síðustu tveimur árum hefur fyrirtækið bætt við þremur öflugum borum í safnið vegna mikillar eftirspurnar, ekki síst í sjóholum fyrir fiskeldi og heitavatnsholum fyrir veitur og sveitarfélög. „Það eru þær Saga og Freyja og svo sá nýjasti sem hefur ekki fengið nafn. Þetta hefur breytt miklu fyrir okkur og valdið því að biðtími eftir borum hefur minnkað mjög mikið miðað við þegar hann var sem mestur fyrir tveimur árum.“
Guðmundur segir að í sumum tilfellum geti skipt mjög miklu máli að gera viðskipti við verktaka með reynslumikið starfsfólk og góðar vélar. „Við höfum úr að ráða mjög reyndu starfsfólki og alls kyns búnað sem hægt er að grípa í þegar upp koma vandamál. Jarðlögin djúpt í jörðu geta verið erfið við að eiga og þá er eins gott að eiga alls kyns tæki og reynt starfsfólk til að geta klárað verkefnið.“
Guðmundur segir fyrirtækið hafa fengið áhugaverð verkefni á undanförnum árum. „Í fyrravetur fengum við kall frá almannavörnum um að bora þrjár holur í nágrenni við Reykjanesbæ þegar hætta var á að Svartsengi myndi detta út vegna hraunflæðis. Við sömdum við þann verkkaupa sem við vorum að vinna hjá um að fara úr því verki, fengum Jarðboranir í samstarf með okkur og nokkrum mánuðum seinna var búið að bora þrjár ca. 1.500 m holur og tryggja það að Reykjanesbær myndi haldast frostfrír ef allt færi á versta veg í Svartsengi.
Það sem kom hvað mest á óvart á síðasta ári var þegar við hittum á heitt vatn á Ísafirði eins og fram hefur komið í fréttum. Talsvert hafði verið borað á svæðinu en ekki mikill árangur verið og það voru því gleðitíðindi þegar þetta gerðist. Þessi fundur mun væntanlega gerbreyta orkunotkun á svæðinu og duga til húshitunar fyrir þriðjung Ísafjarðar. Orkubú Vestfjarða er þó ekki hætt og erum við á leið til þeirra aftur innan tíðar,“ segir Guðmundur Á. Böðvarsson, framkvæmdastjóri Ræktunarsambands Flóa og Skeiða, að lokum.