„Svona ertu í stuði á nýja bílnum!“

Friðrik V. Árnason, sérfræðingur í hleðslulausnum Orkusölunnar, segir góðan tíma …
Friðrik V. Árnason, sérfræðingur í hleðslulausnum Orkusölunnar, segir góðan tíma að huga að hleðslustöðvum. mbl.is/Aðsend

Orkusalan býður upp á hleðslulausnir fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki auk þess sem fyrirtækið hefur aukið umsvif sín á opnum hleðslustöðvum með StoppuStuð-stöðvunum.

„Þetta er klárlega einn skemmtilegasti bransinn til að starfa við í dag,“ segir Friðrik Valdimar Árnason, sérfræðingur í hleðslulausnum Orkusölunnar. „Á einungis nokkrum árum sjáum við mikla aukningu í gæðum á rafbílum og þjónustan fyrir notendur er alltaf að aukast.“

Orkusalan býður upp á hleðslulausnir fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki auk þess sem hún hefur aukið umsvif sín á opnum hleðslustöðvum. „StoppuStuð-stöðvarnar okkar er að finna hringinn í kringum landið, bæði hraðhleðslustöðvar og 22 kW stöðvar í íbúðahverfum,“ segir hann.

Hleðslustöð fyrir þínar þarfir

Hvað skiptir máli við val á hleðslustöð?

„Það er misjafnt hverju fólk leitar eftir. Sumir vilja hafa áfasta snúru á stöðinni og jafnvel sjálfvirka hleðslu þannig að hægt sé að stinga bílnum í samband eins og öðrum raftækjum. Aðrir vilja fá snjallstöðvar til að fylgjast með notkun á meðan sumum duga einfaldari stöðvar og vilja bara fá stuð á bílinn. Við erum með gott úrval sem þjónar öllum þessum þörfum en það sem er mikilvægara er að þetta eru góðar stöðvar sem henta íslensku veðurfari og bilanatíðnin er lítil,“ segir Friðrik og bætir við: „Það sem skiptir flesta máli eru þægindi og áreiðanleiki og það er stöðugt verið að þróa þessar lausnir áfram. Það er komin góð reynsla af uppsetningu og rekstri á hleðslustöðvum svo ferlið er tiltölulega einfalt. Verðið okkar er hagstætt en Orkusalan býður upp á leigu á hleðslustöð frá 990 kr. á mánuði.“

Orkusalan er í dag með 39 hraðhleðslustúta um allt land …
Orkusalan er í dag með 39 hraðhleðslustúta um allt land og til stendur að bæta við stöðvum næstu árin. mbl.is/Aðsend

Sumartilboð hjá Orkusölunni

Orkusalan hefur einbeitt sér að því að bæta við stöðvum hringinn í kringum landið. „Það gerum við með ánægju svo fólk geti skilið hleðslukvíðann eftir heima,“ segir Friðrik og brosir. „Orkusalan er í dag með 39 hraðhleðslustúta um allt land og til stendur að bæta við stöðvum næstu árin. Síðan erum við að huga að þungaflutningabílum og þær hleðslustöðvar verða ennþá kröftugri eða hátt í 1 MW stöðvar, sem er töluvert meira afl en hraðhleðslustöðvar fyrir einkabíla í dag. Orkuskiptin munu umbylta samgöngum á næstu tíu árum,“ segir Friðrik.

Það er að mörgu að huga á þessum árstíma þegar kemur að rafbílum. „Nú þegar frost er að fara úr jörðu er tilvalið að huga að því að setja upp hleðslustöð utandyra þar sem öll jarðvinna er mun auðveldari og uppsetning tekur styttri tíma. Orkusalan hefur ákveðið að bjóða sumartilboð á nýjum hleðsluáskriftum. Sé hleðslustöð tekin á leigu á tímabilinu frá 1. maí til 31. júlí fæst frí leiga á stöðinni fyrstu þrjá mánuðina. Það eina sem þarf að gera er að heimsækja heimasíðuna okkar, www.orkusalan.is, og panta stöð,“ segir Friðrik.

Boðið verður upp á 50% afslátt af hleðslu á hraðhleðslustöðvum …
Boðið verður upp á 50% afslátt af hleðslu á hraðhleðslustöðvum Orkusölunnar í sumar. mbl.is/Aðsend

Meira stuð á nóttunni

Fram undan eru bjartar nætur sem margir ætla eflaust að nýta til ferðalaga. „Við ætlum einnig að bjóða fólki 50% afslátt af hleðslu á hraðhleðslustöðvum okkar í sumar. Við erum stöðugt að leita leiða til að dreifa álagi á kerfið og það er tilvalið að hlaða á nóttunni þegar álag er minna.“

Stoppustuð hraðhleðslustöðvar Orkusölunnar er að finna á eftirtöldum stöðum en einnig er þær að finna í E1-appinu: Á höfuðborgarsvæðinu í Skútuvogi við Húsasmiðjuna, í Lágmúla við bílastæði Nova og við Hafnarbraut í Hafnarfirði. Á landsbyggðinni er Stoppustuð í Úthlíð á Selfossi, í Skarðshlíð á Suðurlandi við veitingastaðinn Heimamenn, við Stracta-hótelið á Hellu, við Húsasmiðjuna á Akureyri og á Egilsstöðum.

Lumar þú á góðu ráði fyrir nýja rafbílaeigendur?

„Já, það er eitt sem er sniðugt að gera fyrir þá sem eru ekki komnir með snjallmæli heima. Að senda álestur á sína dreifiveitu sirka tveimur til þremur mánuðum eftir að heimahleðslustöðin er sett upp. Þannig er hægt að aðlaga áætlun og minnka líkurnar á að fá bakreikning. Svo bara að njóta þess að vera í stuði á nýja bílnum!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert