„Eigendur verði sérfræðingar í sínum dýrum“

Frá árinu 1995 hafa Dýrheimar verið umboðsaðilar Royal Canin á Íslandi og boðið upp á faglega þjónustu, sérvaldar vörur og traust ráð til að hundum og köttum líði sem best. „Heilsa dýrsins þíns er ómetanleg,“ segir Theodóra Róbertsdóttir dýrahjúkrunarfræðingur.  

„Hjá Dýrheimum eru dýrin þín hluti af fjölskyldunni okkar en frá upphafi höfum við haft mikinn metnað fyrir því að bjóða upp á aðeins það besta fyrir dýrin. Við erum með vísindamiðað fóður fyrir hunda og ketti, sérfræðiþjónustu, hundaskóla, næringarráðgjöf og heilsufarstékk fyrir hunda og ketti,“ segir Theodóra. 

Fyrirbyggjandi umönnun dýra er lykillinn að heilbrigðu lífi þeirra 

Theodóra hlaut menntun sína sem dýrahjúkrunarfræðingur í Þýskalandi. „Þegar ég kem til starfa hjá Dýrheimum, þá vildum við vera með víðtækari nálgun í þjónustu við gæludýr, með því að bjóða til viðbótar við almenna næringarráðgjöf upp á heilsuráðgjöf fyrir hunda og ketti. Dýrahjúkrunarfræðingar eru oft fyrsti snertipunktur eigenda gæludýra við heilsufar þeirra. Í Heilsutékki Dýrheima er hægt að fá grunnmat á heilsu dýrsins þar sem m.a. tannheilsa, holdafar, vöðva- og feldástand er metið. Næringarráðgjöf er veitt eftir þörfum í heilsutékkinu, en næring spilar stóran þátt í heilbrigði og vellíðan hunda og katta.“  

Theodóra segir sérfræðinga Dýrheima mikla dýravini og að eitt hlutverk fyrirtækisins í dag sé að halda utan um öflugt samfélag hunda- og kattaeigenda, sem velja einungis það besta fyrir dýrin sín. „Ég er fædd í hvolpakassanum ef svo mætti segja, en ég var alin upp með hundum þegar ég var yngri og á nú sjálf tvo hunda og einn kött. Dýr hafa þannig fylgt mér lengi. Ég er einnig hundaræktandi og sýningadómari, þannig að ég þekki allar hliðar þess að halda dýrum í frábæru ástandi, að fóðra þau rétt og þjálfa,“ segir hún.  

„Við trúum því að traust samfélag ábyrgra hunda- og kattaeigenda stuðli að góðu lífi dýranna og það sem við viljum ná fram með reglulegu Heilsutékki er að eigendur verði sérfræðingar í sínum dýrum til að geta stutt sem best við þau heima fyrir. Með því að auka þekkingu og sjálfstraust eigenda á heilsu dýra sinna má þannig fyrirbyggja í mörgum tilfellum stærri vandamál og auðvelda eigendum að þekkja hvenær er svo þörf á að leita til dýralæknis.“

Dýrin eru hluti af fjölskyldunni 

Theodóra hefur lokið viðbótarnámi í næringu smádýra frá bresku dýralæknasamtökunum og segir hún fóður skipta meira máli en marga grunar þegar kemur að líðan gæludýra. Fóðurmarkaðurinn skiptist í raun í tvennt – annars vegar vörur sem byggja á vísindalegum rannsóknum og hins vegar vörur sem eru að mestu markaðssettar út frá hugsjón, tískustraumum og óstaðfestum fullyrðingum. En áhrif falskrar markaðssetningar virðast hafa gífurleg áhrif þótt engar rannsóknir séu að baki fullyrðingum þeirra að hennar sögn. 

„Dýrheimar hafa lagt ríka áherslu á að hvetja eigendur til að vera gagnrýnir á markaðssetningu og velja næringu sem sannarlega gagnast dýrunum þeirra. Fullyrðingar um innihaldsefni í fóðri eru oft óskýrar, og það er ekki alltaf augljóst hvað „alvöru kjöt“ eða „náttúrulegt fóður“ raunverulega þýðir eða hverjir kostir þeirra eiga að vera umfram raunverulegar næringarþarfir dýranna,“ segir hún.  

„Við erum umboðsaðilar Royal Canin sem er leiðandi vörumerki í fóðrun hunda og katta. Royal Canin er með nær 60 ára reynslu í að þróa næringarríkt fóður sem er sérsniðið að þörfum mismunandi hunda og katta. Með djúpa þekkingu á heilsu dýra og næringarfræði býður Royal Canin upp á fóður sem byggir á vísindum og er þróað í samstarfi við dýralækna og næringarfræðinga. Í verslun Dýrheima í Kópavogi má einnig finna ýmislegt annað sem dýrið gæti þurft á að halda, t.d. þroskandi og skemmtilegt dót fyrir andlega heilsu þeirra,“ segir Theodóra.   

Rétt samsett næring er lykilatriði í uppvexti og heilsu dýranna og gegnir mikilvægu hlutverki í að styðja við endurheimt eftir eða við veikindi og er mikilvægur áhrifaþáttur í sjúkdómsstjórnun sé dýrið með t.d. liðvandamál, hjartveiki, skerta nýrnastarfsemi o.s.frv. Næring er í dag talin fimmta „lífsmarkið“ sem meta skal í hverri dýralæknaskoðun, þar sem metin er þörf á frekara mati á ákveðnum þáttum þar sem næring skiptir enn meira máli að sögn Theodóru. „Slíkir þættir eru m.a. aldur, virknistig, sjúkdómar, húð og feldvandamál, sé dýrið á lyfjum eða fæðubótarefnum. Hundar og kettir þurfa nauðsynlega um 40 næringarefni sem geta komið úr mismunandi innihaldsefnum til þess að viðhalda heilbrigðri líkamsstarfsemi. Til þess að ná réttri samsetningu næringarefna þarf að velja saman innihaldsefni eins og t.d. kjúkling og/eða annan próteingjafa, grænmeti, kornmeti, vítamín og steinefni í réttum hlutföllum en einnig tryggja öryggi og gæði innihaldsefnanna til þess að mæta næringarþörfum dýranna.“  

Fyrsta skrefið til að verða hluti af samfélaginu 

Theodóra segir markmið Dýrheima skýr. Dýrheimar sé staður þar sem hunda- og kattaeigendur geta sótt þær vörur og þjónustu sem þeir þurfa til að annast dýrin sín með öruggum hætti, tryggja velferð þeirra og heilsu, bæði andlega og líkamlega. „Við veitum stuðning í hverju skrefi og erum til staðar með fjölbreytta þjónustu sem er sérsniðin að hverju gæludýri. Ég vil því hvetja alla gæludýraeigendur til þess að vera vakandi fyrir heilsu dýranna sinna og sinna fyrirbyggjandi umönnun. Séu þeir óvissir eða vanti ráðgjöf má ávallt leita til okkar í Víkurhvarf 5 eða bóka Heilsutékk á vefsíðu okkar www.dyrheimar.is“ segir Theodóra Róbertsdóttir, dýrahjúkrunarfræðingur að lokum. 

Royal Canin fóðrið má nálgast hjá Dýrheimum í Víkurhvarfi 5 sem og hjá fjölda góðra endursöluaðila sem má finna á vefsíðu Dýrheima. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert