Fyrst til að ljúka innleiðingu snjallmæla

Páll Erland, forstjóri HS Veitna hélt skemmtilegt erindi á afmælisfögnuði …
Páll Erland, forstjóri HS Veitna hélt skemmtilegt erindi á afmælisfögnuði í Hljómahöllinni. Ljósmynd/OZZO

Páll Erland, forstjóri HS Veitna, er stoltur af þeim merka áfanga að nýverið náði fyrirtækið að klára að snjallmælavæða viðskiptavini fyrirtækisins. „Á undanförnum mánuðum höfum við verið í stefnumótun og skipulagsbreytingum sem tóku gildi í upphafi árs í þeim tilgangi að gera okkur betur búin undir framtíðina,“ segir Páll Erland, forstjóri HS Veitna.

„Eins náðum við nýverið þeim merka áfanga að klára snjallmælavæðingu viðskiptavina og vorum þar með fyrsta veitufyrirtækið á landsvísu til að ljúka þeirri vegferð. Um þessar mundir erum við einnig að fagna því að komin eru yfir 50 ár frá stofnun Hitaveitu Suðurnesja, forvera HS Veitna, og um leið halda í heiðri sögu uppbyggingar veitukerfa á okkar veitusvæðum, sem spannar yfir 120 ár,“ segir hann.

Snjallmælar eru mikilvægur hluti veitukerfisins og lykill að nútímalegri þjónustu við viðskiptavini. „Árið 2014 hófst vegferðin við að skipta út öllum hemlum í hitaveitu hjá heimilum og fyrirtækjum og var þeim skipt út fyrir svokallaða rennslismæla og lauk þeirri vegferð árið 2018. Í því felst að viðskiptavinir greiða fyrir raun-notkun og geta fylgst með daglegri notkun á vefsíðu HS Veitna og jafnvel brugðist við ef upp kemur bilun í húskerfum.“

Árið 2015 var tekin ákvörðun um að snjallvæða jafnframt rafmagnsmæla fyrirtækisins. „Á þessum tíma var starfsfólk í vinnu við að ganga í hús og lesa af rafmagnsmælum og voru að sinna ríflega 72 þúsund álestrum á ári. Snjallmælarnir skila daglegum álestri og notkun í klukkustunda upplausn. HS Veitur hafa nú lokið snjallmælavæðingunni, fyrst veitufyrirtækja,“ segir Páll.

Afmælisfögnuður HS Veitna gekk vonum framar og tók starfsfólk fyrirtækisins á móti tæplega tvö hundruð manns í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ sem fögnuðu þessum merku tímamótum. „Auk fyrirlestra vorum við með sýningu á ýmsum munum sem viðkoma starfseminni bæði nú og frá fyrri tíð,“ segir Páll og bætir við að uppbygging veitukerfa sé magnað fyrirbæri og gaman að koma þeim skilaboðum til almennings. „Að koma rafmagni, heitu og köldu vatni frá auðlindinni heim til fólks og út í atvinnulífið er viðfangsefnið og hafa þessi kerfi verið byggð upp í áranna rás og eru nú orðin nauðsynlegur hluti af lífi fólks.“

Það eru komin yfir 50 ár frá stofnun Hitaveitu Suðurnesja, …
Það eru komin yfir 50 ár frá stofnun Hitaveitu Suðurnesja, forvera HS Veitna, og fögnuðu tæplega tvö hundruð manns þessum merku tímamótum í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Ljósmynd/OZZO

Átta eldgos hafa reynt á kerfin

HS Veitur eru framsækið þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem hefur mætt fjölmörgum áskorunum og þróast í takt við breyttar aðstæður í samfélaginu. „Til þess að veita viðskiptavinum þjónustuna rekur fyrirtækið fjölbreytt veitu- og dreifikerfi á hverju svæði fyrir sig. Áhersla er lögð á rekstraröryggi, viðhald og þróun innviða sem og öryggi starfsmanna. Á undanförnum árum hefur fyrirtækið mætt miklum vexti íbúa og atvinnulífs á sínum þjónustusvæðum. Starfsfólk HS Veitna er fjölbreyttur hópur fólks sem vinnur stöðugt að því að bregðast við aðstæðum til að tryggja að rafmagn, hiti og vatn skili sér til viðskiptavina á öruggan og hagkvæman hátt,“ segir Páll og bætir við að hann sé mjög þakklátur fyrir mannauðinn.

„Síðustu 18 mánuði höfum við glímt við stóra jarðskjálfta og nú átta eldgos sem sum hver hafa skemmt okkar mikilvægu veituinnviði. Þrátt fyrir allt hefur okkur tekist, meira og minna, að halda uppi þjónustu á Suðurnesjum, þökk sé dugnaði og áræði okkar starfsmanna, Almannavarna og viðbragðsaðila á svæðinu,“ segir Páll.

„Rafdreifikerfin okkar eru öflug“

HS Veitur sjá um dreifingu á rafmagni á Suðurnesjum, Hafnarfirði, hluta Garðabæjar, í Árborg og í Vestmannaeyjum. Í ljósi umræðu um síhækkandi raforkuverð til heimila má geta þess að HS Veitur hafa ekki hækkað verðskrá á dreifingu rafmagns síðan í október 2022 að sögn Páls. „Skýringar á síhækkandi raforkureikningi heimila er því ekki að finna hjá HS Veitum. Samkvæmt samanburði Byggðastofnunar eru HS Veitur að bjóða næstlægsta verð fyrir dreifingu rafmagns á landsvísu. Viðskiptavinir HS Veitna eru því í góðum málum.“

Páll sér framtíðina fyrir sér bjarta og snjalla. „Það er ör þróun í snjallvæðingu veitukerfa. Svo dæmi sé tekið erum við að búa okkur undir að viðskiptavinir framleiði sjálfir rafmagn og afhendi inn á dreifikerfin. Með því þurfum við að gera ráð fyrir að rafmagn flæði í tvær áttir og í því eru ýmsar áskoranir. Svo má nefna tækifæri í nýtingu á svokölluðum orkubönkum til að jafna út toppálag í kerfunum og draga þannig úr óþarfa fjárfestingum.

Gervigreind er einnig að ryðja sér til rúms og við erum að horfa til þess hvaða tækifæri opnast við það, til að mynda við eftirlit og rekstur veitukerfa og við bilanaleit. Þá erum við að búa okkur undir framtíðina með því að setja á laggirnar teymi til að þróa og vinna áfram með þessi tækifæri og vera þannig áfram leiðandi í framförum,“ segir Páll Erland, forstjóri HS Veitna, að lokum.

Glæsilegur hópur fólks HS Veitna í Hljómahöllinni á dögunum.
Glæsilegur hópur fólks HS Veitna í Hljómahöllinni á dögunum. Ljósmynd/Ozzo
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert