Ný kynslóð sérfræðinga í endurnýjanlegri orku

Sigrún Nanna Karlsdóttir er fagstjóri meistaranáms í endurnýjanlegri orku
Sigrún Nanna Karlsdóttir er fagstjóri meistaranáms í endurnýjanlegri orku Ljósmynd/Aðsend

Í Háskóla Íslands er boðið upp á meistaranám í endurnýjanlegri orku. Námið er einstakt tækifæri fyrir nemendur með ýmiss konar bakgrunn til að sérhæfa sig á sviði endurnýjanlegra orkugjafa.

„Það sem gerir meistaranámið í endurnýjanlegri orku við Háskóla Íslands svo sérstakt er þessi sterka þverfaglega nálgun,“ segir Sigrún Nanna Karlsdóttir fagstjóri námsins. „Nemendur fá kennslu og handleiðslu frá sérfræðingum og kennurum úr öflugum rannsóknarteymum innan HÍ og það þvert á svið. Þannig fá þau ekki bara tækifæri til að sérhæfa sig í eigin kjörsviði heldur vinna þau líka í verkefnum með fólki úr öðrum greinum. Það þjálfar þau í að fást við raunveruleg, þverfagleg verkefni sem endurnýjanleg orka krefst í dag, hvort sem er á sviði jarðhita, vatnsafls, raforku eða sjálfbærni.“

Hún segir námið bjóða upp á dýrmæt tækifæri fyrir þá sem vilja leggja sitt af mörkum til orkuskipta og sjálfbærrar þróunar, bæði innanlands og utan. „Við fáum nemendur með bakgrunn í verkfræði, raunvísindum og hagfræði sem vilja einmitt þróa endurnýjanlega orkugjafa, hanna lausnir og meta áhrif þeirra. Þau sem ljúka þessu námi hafa farið út í fjölbreytt störf svo sem í rannsóknum á virkjanakostum, umhverfismati, hönnun og framkvæmd orkumannvirkja og mati á samfélagslegum og hagrænum áhrifum.“

Atvinnulífið tekur þessum nemendum fagnandi

Það er ekki tilviljun að íslenskt atvinnulíf hafi tekið útskrifuðum nemendum úr þessu námi fagnandi. „Það er mikill skortur á sérhæfðu fagfólki á þessu sviði og okkar nemendur eru eftirsóttir starfskraftar hjá orkufyrirtækjum, ráðgjafar- og iðnfyrirtækjum, stofnunum, sveitarfélögum og ráðuneytum bæði hér á landi og erlendis.“

Sigrún Nanna leggur áherslu á tengsl námsins við atvinnulífið. „Við höfum til dæmis þverfaglegt verkefnanámskeið þar sem nemendur vinna í hópum að raunverulegum verkefnum með fyrirtækjum sem eru leiðandi í orkumálum. Þetta eru verkefni sem byggjast á raunverulegum áskorunum og gera nemendum kleift að tengja fræðin við störf og aðstæður í atvinnulífinu. Auk þess fara þau í vettvangsferðir og fá kynningu frá sérfræðingum í orkunýtingu og innviðum á Íslandi.“

Úr náminu hafa einnig sprottið fjölmörg rannsóknar- og nýsköpunarverkefni sem hafa nýst í þróun endurnýjanlegrar orku hér á landi. „Við höfum séð verkefni sem tengjast hönnun og bestun gufulagnakerfa, greiningu á virkni varmaskipta, orkuöflun í ljósi vaxandi eftirspurnar, efnasamsetningu jarðhitavatns og sjálfbærnigreiningu virkjunarkosta. Fjöldi þessara verkefna hefur verið unninn í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki og nýtist í raun í stefnumótun og innleiðingu nýrra lausna.“

Fólk með ólíkan bakgrunn tekur samtalið

„Við menntum fólk sem getur tekið þátt í að leysa stórar áskoranir framtíðarinnar. Þetta eru nemendur sem hafa lært að vinna þvert á greinar, hafa öðlast dýpt í sinni sérhæfingu og hafa lært að meta og stjórna flóknum verkefnum í samvinnu við aðra sérfræðinga. Þau eru tilbúin til að verða leiðandi á sínu sviði og leggja sitt af mörkum til að nýta orku á sjálfbæran hátt.“

Meistaranámið býður upp á nokkur kjörsvið sem endurspegla breiddina í endurnýjanlegri orku. Til dæmis geta nemendur sérhæft sig í orkuverkfræði, þar sem lögð er áhersla á hönnun og skipulag vatns- og vindorkuvirkjana, eða í jarðhitaverkfræði þar sem fókusað er á nýtingu jarðvarma og hönnun tækjabúnaðar. Einnig er í boði sérhæfing í orkuhagfræði, orkustefnum og sjálfbærni með áherslu á samfélagslega og efnahagslega greiningu orkukosta. Þá er sérstök áhersla á jarðeðlis- og jarðefnafræði fyrir þá sem vilja kafa djúpt í náttúrulegan uppruna orkunnar og þróun hennar með jarðvísindin að vopni.

„Það skiptir máli að fólk með ólíkan bakgrunn taki þátt í samtalinu um framtíð orkumála,“ segir Sigrún Nanna að lokum. „Það er það sem þetta nám snýst um, að byggja brýr milli greina og þjálfa næstu kynslóð fagfólks sem getur leitt veginn í sjálfbærri orkunýtingu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert