SnerpaPower er nýsköpunarfyrirtæki sem er leiðandi á raforkumarkaði með það markmið að lækka raforkukostnað fyrirtækja. Íris Baldursdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri SnerpaPower, nýsköpunarfyrirtækis sem hefur það að markmiði að auka samkeppnishæfni orkusækins iðnaðar í endurnýjanlegu raforkukerfi.
„SnerpaPower er leiðandi tækni- og nýsköpunarfyrirtæki á raforkumarkaði,“ útskýrir Íris. „Við vinnum að því að auka samkeppnishæfni orkusækins iðnaðar í endurnýjanlegu raforkukerfi. Við þróum hugbúnað sem lækkar raforkukostnað fyrirtækja, sjálfvirknivæðir ákvarðanatöku og nýtir betur þann sveigjanleika sem felst í tengingu við raforkumarkaði.“ Íris bætir við að markmiðið sé tvíþætt: annars vegar að auka hagræði hjá viðskiptavinum og hins vegar að styðja við orkuskipti í samfélaginu. „Með okkar lausn geta notendur jafnvel selt raforku aftur inn á netið og dregið þannig úr álagstoppum. Það skapar hagræði fyrir fyrirtækin sjálf en líka fyrir samfélagið í heild. Þetta er dæmi um hvernig sjálfbærni og arðsemi geta farið saman.“
„Við vinnum með öllum þeim sem nota mikla raforku í starfsemi sinni, hvort sem þau tengjast beint við flutningskerfið eða dreifiveitu. Þetta eru fyrirtæki sem hafa yfirleitt sett sér metnaðarfull sjálfbærnimarkmið en glíma við flókið umhverfi þegar kemur að orkukaupum og daglegri raforkunotkun. Markaðurinn er ótrúlega flókinn, og hugbúnaðurinn gerir þeim kleift að taka skjótar og upplýstar ákvarðanir og bregðast hratt við truflunum í rekstri.“
Íris segir hugbúnaðinn vinna úr gögnum sjálfvirkt og í rauntíma. „Við byggjum lausnina á lifandi gagnastraumum og spálíkönum sem eru sérsniðin fyrir hvern og einn notanda. Fyrirtæki sem starfa allan sólarhringinn þurfa áreiðanlegar áætlanir og snögga viðbragðsfærni, annars geta frávik orðið dýr. Við höfum séð dæmi um að frávikakostnaður minnki um 30 til 60% með hugbúnaði SnerpaPower sem er gríðarlegt hagræði. Fyrirtækin segja okkur aftur og aftur að þetta gjörbreyti allri orkustýringu.“
Að sögn Írisar hefur hugbúnaðurinn líka bein áhrif á umhverfið. „Því betur sem stórnotendur standa að sínum orkukaupum og notkun, þeim mun minni er sóunin í kerfinu. Þá skilja þeir líka eftir meiri raforku fyrir samfélagið. Hugbúnaðurinn minnkar einnig þörfina fyrir varaafl með því að virkja sveigjanleika notenda. Allt kerfið verður skilvirkara og nýtist betur.“
Spurð um framtíðarsýn SnerpaPower segir Íris þau horfa bæði til áframhaldandi þróunar heima fyrir og vaxtar erlendis. „Við viljum láta samkeppnishæfni og sjálfbærni ganga hönd í hönd. Markaðurinn er að breytast hratt og við þurfum að bregðast við því með nýjum lausnum. Við erum nú þegar farin að sækja á markaði á Norðurlöndum og annars staðar í Evrópu þar sem þörfin er gífurleg.“
Hún nefnir sérstaklega samstarf við norska raforkuflutningsfyrirtækið Statnett og stærstu dreifiveiturnar þar í landi. „Noregur stendur frammi fyrir miklum áskorunum. Atvinnulífið kallar eftir meiri raforku en kerfið er komið að þolmörkum. Þess vegna leita þau nýrra leiða til að nýta betur þá raforku og innviði sem þegar eru til staðar. Því hefur lausn SnerpaPower verið valin fyrir sérstöðu sína á markaði.