Tengjum 2025 haldið í fyrsta sinn

Sigríður Sigurðardóttir segir nýsköpun felast í að gera hlutina betur …
Sigríður Sigurðardóttir segir nýsköpun felast í að gera hlutina betur og að Nýsköpunarfestivalið sé hluti af því. Morgunblaðið/Eggert

Sigríður Sigurðardóttir, forstöðukona stafrænna umbreytinga hjá Veitum, segir Nýsköpunarfestivalið Tengjum 2025, sem haldið verður með pompi og prakt í upphafi júnímánaðar, verða spennandi viðburð sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

„Að leiða stafræna umbreytingu hjá Veitum snýst um að nýta gögn, tækni og sjálfvirkni til að bæta þjónustu, einfalda störf og styðja starfsfólk í daglegum verkefnum. Hjá mér starfar teymi sem er stöðugt að fylgjast með nýjustu tækni og bestu vinnubrögðum hverju sinni – og finna leiðir til að innleiða það sem hentar okkar rekstri,“ segir Sigríður Sigurðardóttir, forstöðukona stafrænna umbreytinga hjá Veitum.

„Stafræna umbreytingin er ekki bara tækniverkefni – hún snýst líka um að bæta upplifun starfsfólks og viðskiptavina með því að skapa betri yfirsýn, skýrari ferla og meiri sjálfvirkni.“

Hvernig lýsir þú nýsköpunarstarfi Veitna?

„Nýsköpun hjá Veitum snýst um að gera hlutina betur – og hún getur átt sér stað alls staðar í fyrirtækinu. Hún felst oft í því að sjá eitthvað sem maður hefur alltaf gert á sama hátt, í nýju ljósi.

Nýsköpunarverkefnin Veitna hafa verið af ýmsum toga en í mínu teymi er rík áhersla á að nýta gögn, oft í rauntíma, til að fá innsýn í kerfin okkar, reka þau betur eða til dæmis vita ávallt gæði kalda vatnsins okkar. Við nýtum líka gervigreind í auknum mæli. Við höfum þróað spjallmenni sem styður við þjónustu og léttir álagi af starfsfólki, og við erum að nýta gervigreindarspálíkön til að átta okkur fyrr á ástandi í kerfum – hvort sem það er hitaveita, rafmagn eða fráveita. Með því getum við forgangsraðað betur og gripið inn í áður en vandamál koma upp.“

Nýsköpunarfestivalið í upphafi júnímánaðar

Þann 3.-5. júní næstkomandi ætla Veitur að halda fyrsta Nýsköpunarfestival fyrirtækisins í hinni fallegu Elliðaárstöð. „Við erum full tilhlökkunar. Þar mun fólk koma saman úr ólíkum áttum til að vinna í hópum að raunverulegum samfélagslegum áskorunum. Við erum að kalla til samstarfsaðila okkar úr hinum ýmsu fyrirtækjum, stofnunum og úr samfélaginu, starfsfólk úr Veitum og Orkuveitunni, tæknifólk, frumkvöðla, hönnuði og fleiri, til að vinna saman að raunverulegum áskorunum í orku- og veitumálum sem varða okkur öll.

Við notum aðferðafræði sem kallast hönnunarsprettir, þar sem fólk vinnur hratt og markvisst að því að koma með lausnir sem geta skilað raunverulegu virði á stuttum tíma. Við fáum líka innblástur frá frábærum fyrirlesurum, bæði innlendum og erlendum.

Markmiðið er að fá fram ferskar hugmyndir en líka að tengja saman ólíkt fólk og byggja upp kraftmikla nýsköpunarmenningu. Og það skiptir okkur máli að hugmyndirnar skili sér í raun; í betri þjónustu, sjálfbærari rekstri og hagkvæmari lausnum,“ segir Sigríður.

Dæmi um áskoranir sem verða teknar fyrir er að sögn Sigríðar hvernig megi tryggja góða innviði í stækkandi borg. „Hvernig sköpum við virði úr úrgangi? Hvernig styttum við framkvæmdatíma og hvernig lítur fráveita framtíðarinnar út? Hvernig vöktum við kerfin okkar og miðlum til viðskiptavina? Og fleira í þeim dúr.

Ég hvet öll sem hafa áhuga á nýsköpun og samstarfi til að skrá sig til leiks og taka þátt í þessu spennandi verkefni með okkur, sem mun skila sér í árangri fyrir allt samfélagið. Síðasta daginn blásum við svo til skemmtunar og tónleika!“

„Framtíðin verður snjallari og sjálfbærari. Við þurfum að nýta gögn …
„Framtíðin verður snjallari og sjálfbærari. Við þurfum að nýta gögn betur, sjá hluti fyrir áður en þeir gerast og vera meira í forvirkum aðgerðum frekar en viðbragði. Gervigreind, sjálfvirkni og greiningartól munu gegna lykilhlutverki í því að bæta þjónustu og spara bæði tíma og fjármuni,“ segir Sigríður. Ljósmynd/Aðsend

Skipa stóran sess í lífi landsmanna

Um starfsemi Veitna segir Sigríður áhugavert að átta sig á því hversu stóran þátt Veitur eigi í daglegu lífi okkar allra. „Við sjáum um að rafmagn, heitt vatn, kalt vatn og fráveita virki og það þarf að gerast á öruggan, sjálfbæran og hagkvæman hátt.

Við erum þjónustufyrirtæki sem leggur mikla áherslu á áreiðanleika, sjálfbærni og það að vera framsækin. Hlutverk okkar er að tryggja aðgengi að þessum grunninnviðum en líka að þróa nýjar lausnir í gegnum samstarf og nýsköpun sem auka lífsgæði til framtíðar.

Við erum alltaf að leita leiða til að bæta þjónustuna, nýta auðlindir betur og forgangsraða rétt, ekki bara til að spara peninga heldur líka til að standa undir vaxandi kröfum samfélagsins. Það er í raun kjarninn í því sem við gerum.“

Fyrirtækið hefur skýran og sterkan tilgang að sögn Sigríðar. „Við erum að vinna að verkefnum sem skipta máli fyrir samfélagið og hafa raunveruleg áhrif á daglegt líf fólks. Það er mikil gróska og hreyfing í fyrirtækinu um þessar mundir og virkilega spennandi verkefni í gangi,“ segir hún.

Framtíðin verður snjallari og sjálfbærari

Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér í veitumálum þjóðarinnar?

„Framtíðin verður snjallari og sjálfbærari. Við þurfum að nýta gögn betur, sjá hluti fyrir áður en þeir gerast og vera meira í forvirkum aðgerðum frekar en viðbragði. Gervigreind, sjálfvirkni og greiningartól munu gegna lykilhlutverki í því að bæta þjónustu og spara bæði tíma og fjármuni.

Við þurfum líka að huga að hagkvæmni, ekki bara tæknilega heldur líka fjárhagslega og samfélagslega. Nýsköpun verður lykillinn að því að byggja upp innviði framtíðarinnar, sem standast bæði aukið álag og auknar kröfur,“ segir Sigríður Sigurðardóttir, forstöðukona stafrænna umbreytinga hjá Veitum, að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert