Ívar Dagsson stofnaði Aarhus Osteopathy, sem nú heitir Osteonordic, árið 2014 á þeim tíma sem hann lauk námi í fagi sínu sem osteopati. Nú rúmlega tíu árum seinna hefur hann náð undraverðum árangri. Opnað 20 stofur vítt og breytt um Danmörku og hyggur nú á frekari landvinninga með því að opna fyrstu Osteonordic-stofuna á Íslandi.
Ívar er íslenskur frumkvöðull sem hefur slegið í gegn í Danmörku og langar að borga til baka velgengni sína með því að hjálpa Íslendingum með stoðkerfisvanda og króníska verki sem ekki hafa fengið úrlausn í heilbrigðiskerfinu.
„Osteonordic-stofurnar í Danmörku hafa gengið mjög vel, en ég flutti frá Íslandi til Danmerkur þegar ég var nítján ára að aldri til að freista gæfunnar í fótbolta. Ég var mjög góður í íþróttinni hér á árum áður, en var búinn að vera meiddur í langan tíma og ætlaði að koma ferlinum mínum meira í gang hér í Danmörku. Það heppnaðist ekki, sem seinna leiddi til þess að ég fór að læra að verða osteopati. Ég ákvað að nota orkuna mína í að hjálpa öðru fólki til að það myndi ekki hljóta sömu örlög og ég gerði,“ segir Ívar Dagsson forstjóri Osteonordic.
„Ég fór sjálfur í sjúkraþjálfun hér í Danmörku og er sjúkraþjálfari að mennt, en eftir námið fannst mér vanta aðeins upp á hæfni mína og þess vegna lærði ég osteopatíu sem ég svo lauk prófi í,“ segir hann.
Á þeim tíma sem Ívar var að útskrifast úr sínu fagi var osteopatía, lítið fag í Danmörku. „Ég lærði fagið til að geta meðhöndlað fólk meira heildrænt og finna ástæðurnar á bak við króníska verki sem algengt er að við osteopatar vinnum með. Á þeim tíma sem ég hóf nám í osteopatíu, var fagið mjög lítið í Danmörku, ekki ólíkt því sem nú er á Íslandi. En eftir stuttan tíma fór allt á fullt hér úti, enda var mjög stór hópur af fólki í Danmörku, líkt og ég tel vera á Íslandi, sem ekki fengu aðstoðina sem þau þurftu hjá sjúkraþjálfurum, kíróprökturum og öðru fagfólki,“ segir hann.
Ívar leggur áherslu á heildræna nálgun fagaðila í osteopatíu. „Við erum að fást við krónísk vandamál hjá fólki, hormónavandamál og verki eftir álag eða slys.“
Sjálfur þurfti Ívar frá að hverfa á íþróttavellinum vegna náravandamála. „Ég var búinn að vera með náravandamál og með verki lengi. Ég hafði farið í aðgerð sem heppnaðist ekki fyrir mig til að komast á fætur aftur og að stunda íþróttir af kappi. Ég hins vegar fann mjög mikla lausn á mínum málum þegar ég fór til osteopata.“
Þegar fólk kemur til Osteonordic er það vanalega búið að fara í gegnum allt heilbrigðiskerfið, en er með málin sín í ólestri eftir mörg ár í kerfinu. „Það er kannski búið að sætta sig við að það er enginn að fara að hjálpa þeim, þegar við komum inn í myndina. Aðsóknin í stofurnar okkar er svo mikil að við höfum þurft að opna eina stofu á fætur annarri og er það ástæða þess að nú erum við komin með 20 stofur og 140 osteopata að starfa fyrir okkur, ásamt þremur konum á skrifstofunni og okkar eigin tölvu-, tölfræði- og bókunarkerfi sem gerir reksturinn mjög hagkvæman og upplýsingatæknivæddan.“
Ívar hóf í fyrstu reksturinn í þriggja herbergja íbúð sinni strax eftir námið á sínum tíma. „Ég og þáverandi unnusta mín bjuggum í lítilli íbúð með barnið okkar en það var ekki í boði lengi því það varð strax svo mikið að gera hjá mér. Ég þurfti að flytja mig um fimm sinnum, til að anna eftirspurn og að opna nýjar stofur víða um Danmörku.“
Ívar hefur verið áberandi í umræðunni um heilbrigðismál í Danmörku en osteopatar heyra undir heilbrigðissvið og eru lögvernduð starfsgrein undir landlækni í öllum löndum. „Orðið var fljótt að berast og kannski ekki síst frá viðskiptavinum okkar sem voru í fyrsta skiptið í langan tíma að fá lausn sinna mála. Þegar ég áttaði mig á því að allt að 20.000 flettingar á heimasíðunni okkar voru að koma frá Kaupmannahöfn, vissi ég að ég þyrfti að opna nokkrar stöðvar þar líka. Þannig má segja að eftirspurn eftir þjónustunni hafi rekið áfram vöxt fyrirtækisins í Danmörku.“
Fyrirhugað er að opna fyrstu Osteonordic-stofuna þann 1. júní á Suðurlandsbraut. Viktor Steinn Bonometti mun verða framkvæmdastjóri stofunnar á Íslandi en hann er einnig formaður Osteopatafélagsins á Íslandi.
„Ég lærði osteopatann á Ítalíu þar sem ég hef búið lengi, en móðir mín er íslensk og faðir minn er ítalskur. Það er mikil hefð fyrir osteopatíu á Ítalíu, þannig má segja að það hafi verið smá sjokk að koma til Íslands árið 2021 og sjá hversu fáir eru menntaðir í faginu hér og hve mörg mál eru óleyst í heilbrigðiskerfinu vegna skorts á fagfólki og meðferð á þessu sviði,“ segir Viktor og bætir við að það séu fjórtán aðilar í Osteopatafélaginu á Íslandi núna.
„Við erum hins vegar sannfærðir um að þær tölur muni hækka á næstu árum. Því við höfum verið að styðja Evrópska osteopatíuskólann (e. European School of Osteopadi/ESO) til að koma af stað útibúi hér á landi – svo nú í töluðum orðum eru sex aðilar að mennta sig í faginu á landinu. En þess má geta að það tekur fjögur ár að læra að verða osteopati og er námið ofan á hefðbundið sjúkraþjálfaranám,“ segir Ívar.
Viktor er áhugasamur fyrir því að kynna osteopoatíu fyrir Íslendingum. „Það verður frábært tækifæri að fá að hjálpa fólki á Íslandi með okkar leiðum.“
Ívar hefur stuðlað að aukinni menntun osteopata í Danmörku. „En þar erum við að útskrifa um það bil 30–40 osteopata árlega,“ segir Ívar og bætir við að hann sé kominn um það bil hálfa leið með vitundarvakninguna í Danmörku. „Við erum í samvinnu við allar tryggingastofnanir í Danmörku sem greiða niður meðferðina hjá okkur. Markmiðið er að koma á samningi við Tryggingastofnun á Íslandi til að auka fjölda þeirra sem geta leitað til okkar.“
Hver er ástæðan fyrir velgengni fyrirtækisins í Danmörku?
„Meðferðin sem við veitum reynist vel. Það skiptir öllu máli og svo hef ég verið duglegur að skrifa greinar á heimasíðuna okkar og fengið talsverða athygli og umfjöllun í fjölmiðlum í Danmörku. Við gerum hlutina aðeins öðruvísi en fyrirtæki gera almennt á heilbrigðissviði, því við nýtum okkur tæknina, erum mjög gagnadrifin, mælum árangur og erum stöðugt að finna leiðir til að gera starfsemina og árangurinn fyrir viðskiptavini betri. Þessi leið skiptir einnig miklu máli fyrir tryggingastofnanir, því hún sannar fyrir þeim stofnunum að það sem við gerum leiðir til árangurs fyrir þá sem leita til okkar.
Osteopatar greina og meðhöndla stoðkerfisvandamál sem hafa áhrif á heilsuna. Meginmunurinn á osteopata og sjúkraþjálfara, svo dæmi sé tekið, er að osteopati reynir að kafa dýpra ofan í orsök sársaukans í stað þess að horfa einungis á einkennin. Meðferðin hjá okkur miðar að því að finna leiðir til að hjálpa líkamanum að lækna sig sjálfur.“
Ívar er með skemmtileg markmið fyrir framtíðina. „Ég er að opna á fleiri stöðum í Evrópu og markmiðið mitt er að það sé aldrei lengra en 30 mínútur í þjónustu osteopata hvar sem þú ert staddur í Evrópu. Ég væri án efa ekki að opna á Íslandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að ég er Íslendingur í húð og hár og langar að borga til baka til samfélagsins af velgengni minni og því sem ég hef lært þegar kemur að því að meðhöndla flókinn krónískan vanda,“ segir Ívar.
Báðir hafa þeir verið að skoða þjónustuna sem í boði er fyrir Íslendinga með flókinn krónískan vanda. „Margir hér á landi eru með vandamál sem tengist lífsstílnum þeirra og skort á vitneskju um líkamann.“
Í Englandi, Þýskalandi, Frakklandi og á Ítalíu starfa í kringum 40 þúsund osteopatar og er fagið í þessum löndum jafn umfangsmikið, ef ekki meira, en sjúkraþjálfun er. „Í þessum löndum teljum við að okkar fyrirtæki geti bætt við þekkingu osteopata. Í dag meðhöndlum við í kringum 15–18 þúsund einstaklinga í mánuði og ætlum við að auka við þann fjölda töluvert.“
Algengustu málin sem Osteonordic kemur að eru heilsufarsbrestir vegna aftanákeyrslu hjá fólki sem hefur fengið heilahristing og högg á hálsinn. „Tryggingastofnanir í Danmörku telja árangurinn af okkar vinnu vera frábæran og er búið að setja upp þverfaglegt teymi um þessi meiðsli í landinu, þar sem við auk taugalækna og fleiri sérfræðinga störfum saman í að efla fólk til að verða gott að nýju.“
Með heildrænni einstaklingsmiðaðri nálgun segja Ívar og Viktor að farið sé ofan í rót vandans, farið er ofan í næringarfræði, öndunaræfingar og aðrar róandi meðferðir séu kenndar.
Hvað verða margir sérfræðingar á stofunni á Íslandi?
„Osteonordic-stofan á Íslandi verður með fimm til sex herbergi og það sama má segja um stofurnar sem við erum að opna í Englandi og Þýskalandi núna. Við reiknum með að byrja með litlar stofur og mæla árangurinn vandlega og svo að breiða okkur hratt um borgirnar – og vonandi á landsbyggðirnar líka eftir því sem eftirspurnin verður meiri. Á tíu ára planinu okkar á Íslandi - þá áttu ekki að þurfa að keyra lengur en í þrjátíu mínútur til að hitta osteopata, hvar sem þú ert staðsettur,“ segja þeir og bæta við að fjölbreytileiki í heilbrigðiskerfinu geri það sterkara.
„Við viljum sjá farnar fleiri fyrirbyggjandi leiðir og að gripið sé inn í hjá fólki áður en það veikist. Við getum stutt aðrar heilbrigðisstéttir sem hafa fengið minni áherslu á næringarfræði og lífstíl í sinni menntun. Það kom okkur á óvart að sjá hversu margir eru á lyfjum hér á landi og kannski er það vegna þess að það eru einu leiðirnar sem heilbrigðisstarfsfólki hefur verið kennt að nota. En með osteopatíu kynnist fólk hvernig líkaminn virkar, og ekki er fókuserað einungis á einkenni verkjanna heldur uppruna þeirra,“ segja þeir og Viktor bætir við að í þau fjögur ár sem hann hefur starfað sem osteopati í landinu hafi hann einmitt hitt skjólstæðinga sem hafa verið að fara lækna á milli án þess að fá svörin sem þeir hafa leitað eftir. „Árangurinn hefur verið mjög góður sem er ánægjulegt að sjá.“
Viktor segir ýmislegt á döfinni á árinu þegar kemur að Osteopatíufélaginu. „Það verður í fyrsta skipti haldið Norrænt þing osteopata á Íslandi, þann 13. til 14. september á þessu ári. Svo hingað til landsins munu osteopatafélögin á Norðurlöndunum heimsækja okkur í tvo daga. Næstu skrefin okkar hér á landi er að koma á samvinnu á Norðurlöndunum og vil ég hvetja alla áhugasama, sér í lagi sjúkraþjálfara, að koma og hitta okkur á þinginu í haust,“ segja þeir Ívar Dagsson forstjóri Osteonordic og Viktor Steinn Bonometti framkvæmdastjóri Osteonordic á Íslandi.
Lestu meira um Osteonordic hérna: www.osteonordic.is