Snjöll lausn við skordýrabitum

Með heat-it er hægt að meðhöndla skordýrabit og stungur frá …
Með heat-it er hægt að meðhöndla skordýrabit og stungur frá lúsmýi og fleiru en tækið má nota á fullorðna og börn. Ljósmynd/Aðsend

Náttúran er byrjuð að vakna til lífsins eftir veturinn, öllum til mikillar gleði en þó eru ekki allir fylgifiskar vors og sumars sem vekja eins mikla gleði, til að mynda blessað lúsmýið. Til allrar lukku er orðið mun auðveldara að meðhöndla bit og stungur með töfratækinu heat-it en hægt er að nota það til að meðhöndla skordýrabit og stungur frá lúsmýi, moskítóflugum, býflugum og geitungum, svo eitthvað sé nefnt.

Strax er hægt að meðhöndla bitið með því að setja heat-it í USB-C tengi á símanum og þar með ræsist forritið sem tækið notar. Tækið er síðan sett á bitið í nokkrar sekúndur en tæknin byggist á því að nota ofurhita (hyperthermia) til að meðhöndla kláða og sársauka. Sama húðsvæði má hins vegar ekki meðhöndla oftar en fimm sinnum á hverri klukkustund og ávallt skal bíða í að minnsta kosti tvær mínútur á milli meðferða.

Rannsóknir benda til þess að heat-it dragi úr áreiti í …
Rannsóknir benda til þess að heat-it dragi úr áreiti í húð sem gerir það að verkum að þörfin til að klóra sér minnkar verulega. Ljósmynd/Aðsend

Alltaf við höndina

Rannsóknir benda til þess að heat-it dragi úr áreiti í húð sem gerir það að verkum að þörfin til að klóra sér minnkar verulega. Til að ná sem bestum árangri er mælt með að nota heat-it strax eftir bitið því það getur dregið úr og jafnvel komið alveg í veg fyrir einkenni. Það ætti að vera auðvelt með því að setja heat-it á lyklakippuna svo það sé alltaf við höndina þegar á þarf að halda.

Hitanæmi húðar hjá einstaklingum er mismunandi og þess vegna býður smáforritið upp á tólf mismunandi stillingar. Þá er hægt að velja meðferðarlengd í 4, 7 eða 9 sekúndur en í fullorðinsstillingu fer hitinn í 52°C og í barnastillingu fer hitinn í 49°C. Með því að velja stillinguna viðkvæm húð í forritinu er hægt að lækka hitastigið um tvær gráður og það ættu því allir að geta fundið hitastig sem hentar.

Hægt er að setja heat-it á lyklakippuna svo það sé …
Hægt er að setja heat-it á lyklakippuna svo það sé alltaf við höndina þegar á þarf að halda. Ljósmynd/Aðsend

Líka fyrir börn

Það er hægt að nota heat-it á börn frá þriggja ára aldri og börn geta sjálf notað það frá 12 ára aldri. Þegar verið er að nota heat-it í fyrsta sinn er ráðlagt að nota stillingarnar stutt, barn og viðkvæm húð til að kanna hvaða hitastig hentar viðkomandi. Þrátt fyrir að tækið nýti rafhlöðu símans þá þarf enginn að hafa áhyggjur af að rafhlaðan eyðist hratt upp því hver meðferð notar einungis um 0,1% af rafhlöðunni. Ef síminn er fullhlaðinn er því mögulegt að nota tækið í allt að þúsund meðferðir á hæstu stillingu sem ætti að vera meira en nóg á hvaða tjaldsvæði sem er.

Frekari upplýsingar um heat-it má finna hér en heat-it er meðal annars til sölu í Lyfjaver, Lyfju, Nova, Austurbæjarapóteki, Rimaapoteki og Efstaleitisapóteki.

Þrátt fyrir að tækið nýti rafhlöðu símans þá þarf enginn …
Þrátt fyrir að tækið nýti rafhlöðu símans þá þarf enginn að hafa áhyggjur af að rafhlaðan eyðist hratt upp því hver meðferð notar einungis um 0,1% af rafhlöðunni. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert