Rafmagn er lífæð nútímans hvort sem það þjónar heimilum, fyrirtækjum eða fjósum. Þegar rafmagnið bregst, stöðvast allt. Það vita kúabændur manna best – því kýrnar geta ekki verið án rafmagns frekar en við hin.
Jón Axel Ólafsson, eigandi Bluetti á Íslandi, segir mikilvægt að horfa bæði fram á veginn og undirbúa sig fyrir það ófyrirséða. „Við þurfum að búa okkur undir hnökra í orkukerfinu, sérstaklega í ljósi hamfara og álags á innviðum,“ segir hann og bætir við að þess vegna hafi bændur tekið af skarið og komið sér upp öflugu varaafli frá Bluetti.
Einn þeirra er Halldór Örn Árnason, bóndi á Grund í Eyjafirði. Hann valdi BLUETTI EP2000, þriggja fasa varaorkukerfi sem tryggir að mjaltakerfi búsins gangi hnökralaust, jafnvel þótt rafmagn fari af. „Kerfið tekur við á sekúndubroti þegar landskerfið gefur sig og heldur öllum kerfum gangandi þar til rafmagnið kemur aftur á,“ útskýrir Jón Axel.
„Kerfið er viðhaldsfrítt, einfalt í uppsetningu og stækkanlegt allt að 155 kWs. Þá er það einnig tilbúið fyrir sólarorku, sem gerir notendum kleift að spara bæði raforku og peninga,“ segir hann.
Bluetti-orkubankarnir hafa vakið mikla athygli fyrir áreiðanleika og fjölbreytta notkun. Þeir veita bæði frelsi og öryggi – hvort sem það er fyrir iðnaðarmenn á fjarlægum vinnustöðum, ferðafólk á leið um hálendið eða heimili og fyrirtæki sem vilja tryggja sér sjálfstæða orku.
„Bluetti er bylting í því hvernig við hugsum um orku,“ segir Jón Axel. „Rafmagnið er orðið jafn sjálfsagt og vatnið – og það er bylting að geta tekið það með sér hvert á land sem er og ekki síst að geta aflað orku frá sólinni og jafnvel selt afgangsorku inn á landskerfið. Bluetti hefur öll þessi kerfi tilbúin.“
Búnaðurinn nýtir háþróaðar LiFePO4-rafhlöður, sem þekktar eru fyrir langan endingartíma og öryggi, jafnvel í íslenskum vetrarkulda. „Hvort sem það er til að hlaða símann, fartölvuna, rafmagnshjólið, drónann eða keyra kaffivélina í húsbílnum – þá sér Bluetti um orkuna,“ bætir hann við. „Og þegar rafmagnið bregst, þá fyrst finnum við hversu háð við erum því.“
Bluetti býður upp á fjölbreytt úrval varaaflskerfa – frá litlum hleðslustöðvum fyrir útilegur og sumarhús, upp í 5.000 W orkubanka fyrir heimili, fyrirtæki og búrekstur. Stærri kerfin má stækka allt að 18.300 kWh upp í 155 kWh, svo auðvelt er að laga lausnirnar að þörfum hvers notanda.
„Við leggjum áherslu á einfaldleika, áreiðanleika og sveigjanleika,“ segir Jón Axel. „Við viljum að notendur upplifi hugarró – að vita að rafmagnið sé tryggt, hvar sem þeir eru staddir.“
Bluetti er kynnt á Iðnaðarsýningunni í Laugardalshöll 2025, þar sem gestir geta séð orkubankana í notkun, fengið ráðgjöf og upplifað kraftinn í þessari nýju tækni.
„Við hvetjum alla – bændur, iðnaðarmenn og heimilisfólk – til að koma og kynna sér Bluetti. Við erum stolt af því að flytja inn búnað sem eykur öryggi og einfaldar lífið. Það er nefnilega mottó dagsins: Einfaldara líf – öruggara líf,“ segir Jón Axel Ólafsson að lokum.
Nánari upplýsingar má finna á bluetti.is