Sendu okkur myndir eða myndskeið úr þínu nærumhverfi á netfrett@mbl.is eða með skilaboðum á Facebook-síðu mbl.is
Umsjón: Lára Halla Sigurðardóttir (larahalla@mbl.is)
Umfjöllun lokið: síðast uppfært þri. 22. mar. 2016 kl. 0:00
16:01 Frétt:
Myndir af árásarmönnum birtar15:46 Frétt:
Lýsa yfir ábyrgð á árásunum14:34 Frétt:
Árásin í Brussel: Samantekt13:46 Frétt:
„Ég hefði allt eins getað verið í vagninum“22.3.2016
Fjölmargir hafa í dag deild myndum á samfélagsmiðlum af þekktustu persónu bókmenntasögu Belgíu, Tinna, að gráta. Tinni var blaðamaður og skapari hans er Herge.
22.3.2016
Belgískir fjölmiðlar hafa í dag birt myndir af meintum árásarmönnum sem sprengdu sprengjur á flugvellinum í Brussel. Myndirnar eru teknar úr öryggismyndavélum. Um er að ræða þrjá unga menn. Þeir sjást ýta á undan sér farangurskerrum, rétt eins og aðrir flugfarþar.
22.3.2016
Hér má sjá hvernig myllumerkið #JeSuisBruxelles hefur dreift úr sér yfir heiminn síðustu klukkutímana.
22.3.2016
EFTA hefur lýst því yfir að höfuðstöðvar stofnunarinnar muni loka degi fyrr en áætlað vegna hryðjuverkaárásanna.
Í yfirlýsingu á Facebook segir stofnunin að tekist hafi að ná í alla þá starfsmenn hennar sem talið er að séu í Brussel og að allir séu heilir á húfi. Skrifstofan muni opna á ný eftir páska þann 29. mars.
22.3.2016
Lögreglan í Belgíu er harðlega gagnrýnd í grein Economist. Þar segir að sú staðreynd að hryðjuverkamaðurinn Salah Abdeslam hafi fundist í íbúð móður vinar síns í hverfi sem er þekkt skjól öfgafullra íslamista, sýni mikil mistök í leyniþjónustu Belgíu.
22.3.2016
AP-fréttaveitan greinir frá því að sprengja sem falin var í ferðatösku hafi verið virkjuð á flugvellinum í Brussel í morgun. Að minnsta kosti var um eina tösku að ræða.
Svo virðist sem sprengjurnar hafi verið flóknar og vandaðar. Rannsakendur sem hafa kannað þær í morgun segja margt líkt með sprengjunum sem notaðar voru í dag og þeim sem notaðar voru í París í Frakklandi í nóvember á síðasta ári.
Fyrir utan íþróttahöllina skammt frá Zavetem-flugvellinum en þar leituðu margir farþegar skjóls.
22.3.2016
Starfsmenn kjarnorkuvera í Belgíu hafa beðið starfsfólk sem sinnir ekki „mikilvægum“ störf að yfirgefa starfsstöðvarnar til að tryggja eigið öryggi. Gæsla var hert við kjarnorkuverin í morgun en óttast er að árásir verði gerðar þar.
Nýlega komst upp um menn sem höfðu notað faldar myndavélar til að fylgjast með hreyfingum á heimili stjórnanda rannsóknarteymis í Belgíu en hópurinn vinnur að rannsóknum um kjarnorku. Talið er hugsanlegt að staðið hafi til að ræna manninum til að fá aðgang að efnum sem notuð eru í kjarnorkuverum eða fá aðgang að kjarnorkuveri.
Myndin sýnir kjarnorkuver í Belgíu.
22.3.2016
Fólk gengur rólegt um flugstöðina. Margir eflaust með hugann við næsta áfangastað, jafnvel gott frí eða heimsókn til ættingja í öðrum löndum. En svo dynja ósköpin yfir. Á meðfylgjandi myndskeiði, sem tekið er úr eftirlitsmyndavél má sjá viðbrögð fólksins er fyrri sprengjan springur.
22.3.2016
Donald Trump forsetaframbjóðandi hefur ýmislegt um hryðjuverkin í Brussel að segja. Hann minnist Brussel sem friðsælar borgar og að nú þurfi Bandaríkin að „vera sterk“. Svo skýtur hann auðvitað föstum skotum á Obama.
22.3.2016
Jan Jambon, innanríkisráðherra Belgíu, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu. Hann mun heimsækja Zaventem-flugvöllinn síðar í dag ásamt Charles Michel, forsætisráðherra Belgíu, til að kynna sér stöðu mála.
22.3.2016
Belgíski fjölmiðillinn RTBF greinir frá því að lögregla sé nú við leit í Schaerbeek-hverfinu í Brussel í Belgíu í tengslum við árásirnar í morgun.
22.3.2016
Federica Mogherini, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, brotnaði saman og felldi tár í lok ræðu sinnar í Brussel fyrir skömmu. Hún sagði meðal annars að þetta væri mjög sorglegur dagur fyrir Evrópu.
22.3.2016
„Við getum og við munum sigra þá sem ógna velferð og öryggi fólks um allan heim,“ segir í kveðju Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, til Belga vegna árásanna í Brussel í morgun.
Hann ræddi við Charles Michel, forsætisráðherra Belgíu, í síma í morgun og vottaði honum samúð sína vegna hryðjuverkanna í morgun. Sagði hann að Bandaríkin muni allt sem þarf að gera til að aðstoða Belgíu við að hafa hendur í hári þeirra sem bera ábyrgð á árásunum.
22.3.2016
Einn af starfsmönnum Starbucks á Zaventem-flugvellinum í Brussel í Belgíu er meðal þeirra sem slösuðust í tveimur sprengjuárásum þar í morgun.
Svo virðist sem önnur sprengjan hafi sprungið fyrir utan kaffihúsið. Öll kaffihús keðjunnar í Brussel verða lokuð næstu klukkustundirnar.
22.3.2016
Fregnir frá Belgíu herma nú að ein sprengjanna á flugvellinum hafi innihaldið nagla. Þetta kemur fram í nýrri frétt AP.