mbl | sjónvarp

„Síminn byrjar örugglega að hringja hjá henni í vor“

ÍÞRÓTTIR  | 19. febrúar | 10:45 
„Þetta er besti leikmaður liðsins,“ sagði handboltamaðurinn fyrrverandi Einar Ingi Hrafnsson í Handboltakvöldi sem er aðgengilegt áskrifendum Handboltapassans þegar rætt var um Söru Dögg Hjaltadóttur, leikmann ÍR.

„Þetta er besti leikmaður liðsins,“ sagði handboltamaðurinn fyrrverandi Einar Ingi Hrafnsson í Handboltakvöldi sem er aðgengilegt áskrifendum Handboltapassans þegar rætt var um Söru Dögg Hjaltadóttur, leikmann ÍR en Handboltakvöld er í umsjón Ingvars Örns Ákasonar.

Sara Dögg, sem er 24 ára gömul, hefur verið besti leikmaður ÍR á tímabilinu en hún er sjötti markahæsti leikmaður deildarinnar með 83 mörk í 16 leikjum.

„Hún kemur þarna inn á góðum tímapunkti og fær mjög stórt hlutverk í liðinu,“ sagði Einar Ingi.

„Síminn byrjar örugglega að hringja hjá henni í vor,“ bætti Einar Ingi svo við og vísaði til þess að stærstu lið deildarinnar myndi að öllum líkindum sýna henni mikinn áhuga þegar tímabilinu lýkur.

Loading