mbl | sjónvarp

„Elsku pabbi, gangi þér vel í kvöld“

ÍÞRÓTTIR  | 20. febrúar | 14:13 
Víkingur úr Reykjavík hefur tekið saman kveðjur frá stuðningsmönnum sínum á öllum aldri fyrir mikilvægan síðari leik karlaliðsins gegn Panathinaikos í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Víkingar, ungir sem aldnir, senda þar liðsmönnum hjartnæmar kveðjur. Leikmenn og starfslið Víkings fékk að sjá myndskeiðið í dag, sem hefur eflaust blásið þeim byr í brjóst.

„Elsku pabbi, gangi þér vel í kvöld!“ er ein af fjölmörgum kveðjum sem sjá má í myndskeiðinu en þar voru á ferðinni börn Jóns Guðna Fjólusonar, varnarmanns liðsins.

Liðin mætast á Ólympíuleikvanginum í Aþenu klukkan 20 í kvöld. Fyrri leiknum í Helsinki lauk með 2:1-sigri Víkings og því óhætt að segja að um mikilvægan leik sé að ræða.

Myndskeiðið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Loading