mbl | sjónvarp

#74. - Helsingjasteik með brúnuðum og Logi ósáttur við orð Sigurjóns

INNLENT  | 28. apríl | 9:21 
Logi Einarsson, ráðherra fjölmiðlamála hyggst standa við þá ákvörðun sína að draga úr styrkjum til tveggja stærstu einkareknu fjölmiðla landsins. Þetta staðfestir hann í samtali á vettvangi Spursmála.

Logi Einarsson, ráðherra fjölmiðlamála, hyggst standa við þá ákvörðun sína að draga úr styrkjum til tveggja stærstu einkareknu fjölmiðla landsins. Þetta staðfestir hann í samtali á vettvangi Spursmála.

Þátturinn var sendur út hér á mbl.is klukkan 14 en upptöku af honum má nálgast í meðfylgjandi myndbandsspilara, á Spotify og YouTube, og er hún öllum aðgengileg. 

Á að refsa af eigin geðþótta?

Í viðtalinu er Logi einnig spurður út í ummæli sem Sigurjón Þórðarson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis lét falla og lúta að því að refsa eigi fjölmiðlum sem ekki stunda fréttaflutning sem er honum að skapi.

Í þættinum verður einnig rætt við Loga um brýn mál sem tengjast gervigreindarkapphlaupi stórveldanna, styrki til námsmanna og sitthvað fleira.

Andlát páfans og skólamáltíðir

Í fréttum vikunnar er rætt við þau Jakob Frímann Magnússon, fyrrum þingmann Flokks fólksins og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra.

Þar ber ýmislegt á góma, andlát páfans í Róm, skólamáltíðir og annað sem til umfjöllunar hefur verið í sneisafullri fréttaviku í upphafi sumars.

Fylgstu með áhugaverðu samtali um þjóðfélagsmál, vítt og breitt, á vettvangi Spursmála alla föstudaga kl. 14 á mbl.is.

Loading