Logi Einarsson, ráðherra fjölmiðlamála á Íslandi telur að sú lækkun sem hann hyggst mæla fyrir á styrkjum til miðla Sýnar og Árvakurs vegi ekki svo þungt að það skipti öllu máli fyrir fyrirtækin.
Þetta kemur fram í viðtali við Loga á vettvangi Spursmála.
Mun styrkurinn skipta máli í lok dags?
Í viðtalinu er hann spurður hvort hann óttist ekki að þessi lækkun geti orðið til þess að ríða Stöð 2 að fullu en vangaveltur hafa verið uppi um hversu lengi Sýn hyggst halda úti sjónvarpsstöðvarrekstri sínum.
Orðaskiptin um þetta má sjá í spilaranum hér að ofan en einnig eru þau rakin í textanum hér að neðan:
Leggur Stöð 2 upp laupana?
Þú veist Logi jafn vel og ég að það hafa verið uppi miklar draugasögur um það t.d. að fréttastofa Stöðvar 2 muni leggja upp laupana. Menn eru skíthræddir um að þeir miðlar verði skrúfaðir niður því þar er fyrirtæki á markaði sem sér ekki hag sinn í því að reka þessa einingu áfram. Þetta er mikilvægur miðill, Vísir, Stöð 2, sem þú þekkir og hefur notið góðs af í þinni pólitík. Á sama tíma og menn óttast að þessi miðill muni jafnvel leggja upp laupana þá tekur þú ákvörðun um að veikja stöðu hans alveg sérstaklega. Ertu að reyna að ýta þeim yfir brúnina...
„Nei, ég er ekki að gera það Stefán.“
En ef það gerist?
„Í fyrsta lagi þá eru þetta ekki miklar upphæðir í stóra samhengi þessara tveggja fyrirtækja. Í öðru lagi verð ég að hugsa um það að það eru litlir staðbundnir miðlar sem lepja næstum dauðann úr skel og reiða sig algjörlega á þetta og þeir fá þá aðeins meira. Ég vona svo sannarlega að Sýn og Stöð 2 og Vísir og sú samsteypa nái vopnum sínum og að við getum komið fram með frumvarp í haust sem verður breið sátt um sem getur tryggt stöðu þessara stóru og sterku miðla líka.“
Mintumaðurinn sem sprakk
En þangað til ertu að veikja þennan miðil og þú veist ekki hvað gerist í millitíðinni. Þú ert væntanlega taka áhættu þarna.
„Þá verður þetta nú svipað og After-Eightið sem hann borðaði mintumaðurinn sko. Þetta er ekki sú upphæð sem mun ríða baggamuninn,“ svarar Logi og vísar þar í frægt atriði úr Monty Python.
Er verið að senda skilaboð
En þú ert að senda skilaboð.
„Nei, ég er ekki að senda nein skilaboð. Ég er að senda skilaboð um það, Stefán...“
Þú ert að segja að staðbundnu miðlarnir sem taka viðtal við Gunnu á Drottningarbraut á Akureyri skipti meira máli fyrir lýðræðið í landinu en þessir stóru miðlar.
„Nei, ég er að segja að þeir skipti jafn miklu máli.“
Skipta þeir jafn miklu máli?
„Já þeir skipta jafn miklu máli.“
Bíddu, gegna þeir almannavarnarhlutverki. Fer einhver inn á Akureyri.net þegar eldgos brýst út?
„Nei, nei.“
Það fara 120 þúsund manns hérna inn á einni mínútu.
„Já já en þeir skipta máli.“
Þú segir jafn miklu.
„Já fyrirgefðu. Kannski á ekki að líkja svona hlutum saman því þeir hafa að einhverju leyti öðru hlutverki að gegna.“
Þeir fá hlutfallslega miklu frekar nú þegar og þú ætlar að auka á þann mun enn frekar með þessari sértæku aðgerð.
Viðtalið við Loga má sjá í heild sinni hér að neðan: