Myndin er tekin að skýrast betur eftir fall flugfélagsins Play. Í dag er vika liðin frá gjaldþroti þess. En áhrifa fallsins gætir áfram og inngrip stjórnvalda kann að hafa ófyrirséðar afleiðingar.
Þetta er meðal þess sem fjallað er um í aukaþætti Spursmála sem sýndur var hér á mbl.is fyrr í dag. Upptöku af þættinum má nálgast í meðfylgjandi myndbandsspilara, á Spotify og YouTube, og er hún öllum aðgengileg.
Þekking úr ólíkum áttum
Viðmælendurnir þekkja vel til flugrekstrar en þó úr sitthvorri áttinni. Það eru þeir Steinn Logi Björnsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Icelandair og forstjóri og eigandi Bluebird, auk Sveins Andra Sveinssonar, sem er annar tveggja skiptastjóra þrotabús WOW air.
Fylgist með spennandi umræðu og upplýsandi á vettvangi Spursmála.












