mbl | sjónvarp

#92. - Söguleg vika, átök í Kópavogi og gerræði utanríkisráðherra

INNLENT  | 10. október | 16:21 
BSRB hefur talað af hörku gegn umbótum á leikskólastarfi í Kópavogi. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri svarar af þunga. Vinnubrögð utanríkisráðherra gegn íslensku iðnfyrirtæki afhjúpuð í Spursmálum.

Sneisafullur Spursmálaþáttur af spennandi umræðum um innlend málefni og af alþjóðasviðinu var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag.

Upptaka af þættinum er öllum aðgengileg í meðfylgjandi myndbandsspilara en einnig á Spotify og YouTube.

Fréttir vikunnar gerðar upp

Í fréttum vikunnar er rætt við fjölmiðlakonuna Sunnu Sæmundsdóttur og Björn Inga Hrafnsson, aðstoðarmann formanns Miðflokksins. Þau eru öllum hnútum kunnug í íslensku þjóðlífi en ræða einnig nýjan friðarverðlaunahafa Nóbels, friðarsamninga fyrir botni Miðjarðarhafs, brottfall verka Halldórs Kiljan Laxness úr skólakerfinu og versnandi efnahagshorfur.

Hver verður kjörinn nýr varaformaður Miðflokksins á landsþingi hans á sunnudag?

Kópavogsmódelið varið

Þá mætir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi á vettvang Spursmála og svarar gagnrýni BSRB á hið svokallaða Kópavogsmódel sem innleitt var árið 2023 og miðar að því að bæta þjónustu við leikskólabörn í bænum. Nýverið gaf Varða, rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins út rannsókn kynjafræðingsins dr. Sunnu Símonardóttur sem varpar ljósi á óánægju 20 foreldra í Kópavogi með þær breytingar sem innleiddar hafa verið á kerfinu.

 

Sonja Ýr Þorbjörnsdóttir formaður BSRB var boðið að mæta í þáttinn til þess að ræða málið en í orðsendingu til Spursmála sagðist hún of önnum kafin við undirbúnings kvenna- og kváraverkfalls sem boðað hefur verið til þann 24. október næstkomandi til þess að geta orðið við því.

 

Stefnir Vélfag í þrot

Að lokum sest hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson í settið og ræðir hreint ótrúlega stöðu sem iðnfyrirtækið Vélfag á Akureyri er komið í vegna þvingunaraðgerða sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra hefur gripið til gegn fyrirtækinu. 

Fylgstu með Spursmálum alla föstudaga klukkan 14 á mbl.is.

Loading