Íbúar Akureyrarbæjar hafa aldrei verið eins margir og nú. Íbúafjöldi bæjarins 1. september sl. var 19.156 samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands. Íbúum bæjarfélagsins hefur fjölgað um 165 síðustu sex mánuði. Meira
Tívolí Akureyrar fær að opna í kvöld en tívolíið var ekki opnað um síðustu helgi eins og áður var ráðgert. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, segir að bærinn hafi gefið leyfi fyrir tívolíinu með þeim fyrirvara að öllum sóttvörnum verði fylgt. Meira
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, segir að það ætti engum að leiðast í sumarfríi á Akureyri. Sjálf er hún búin að búa í bænum í tvö ár og kann vel við sig en áður var hún bæjarstjóri í Vesturbyggð. Meira
Mikið er um ferðamenn á Akureyri og Siglufirði þessa helgina, en jarðskjálfti af stærð 5,3 varð úti fyrir norðurströndinni á Tjörnesbrotabeltinu rétt eftir klukkan 15 í dag. Meira
Frítt verður í ferjuna Sævar sem siglir frá Árskógssandi til Hríseyjar frá og með deginum í dag og út júní. Meira
Bæjarstjórinn á Akureyri mun ræða við forsvarsmenn fyrirtækisins Hrísey Seafood um næstu skref í vikunni. Skoða á hvernig hjálpa megi fyrirtækinu að koma starfsemi aftur í gang, ef sú stefna verður tekin. Meira
Akureyrarbær er að kanna möguleika á því að niðurgreiðslur fargjalda í Hríseyjaferjuna verði auknar þannig að fólk geti farið út í Hrísey án endurgjalds. Meira
„Þetta er hörmulegt og óskaplega sorglegt að sjá þennan stærsta vinnustað í eyjunni farinn, það er bara þannig,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, í samtali við mbl.is. Hún sigldi til Hríseyjar í hádeginu ásamt Höllu Björk Reynisdóttur, forseta bæjarstjórnar, til að kynna sér aðstæður og ræða við íbúa eftir brunann í gamla frystihúsinu í morgun. Meira
Akureyrarbær varð í dag fyrst sveitarfélaga á Íslandi til að hljóta viðurkenningu Barnvænna sveitarfélaga. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, afhentu Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra á Akureyri, viðurkenninguna við hátíðlega athöfn á Akureyri. Meira
„Það er auðvitað nauðsynlegt að geta gripið til einhverra úrræða, en að nýta heimild til götulokana og banna umferð hefur ekki verið rætt og yrði hvergi vinsælt,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, í samtali við Morgunblaðið. Meira
Samtölum bæjarstjóra og tveggja bæjarfulltrúa á Akureyri við íbúa Grímseyjar um stöðu mála í eyjunni lýkur væntanlega í næstu viku. Meira
Stefán Sigurðsson á Akureyri fagnaði hundrað ára afmæli sínu í gær, 16. október, og þótti helst til of mikið umstang í kringum kaffitímann. „Það er bara eins og maður sé eitthvert stórmenni“, sagði hann. Meira
Rúmlega 1.100 þorskígildistonn hverfa frá Grímsey með sölunni á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Sigurbirni ehf. til Ramma hf., sem er með höfuðstöðvar sínar á Siglufirði. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar segir tíðindin alvarlegar fréttir fyrir byggðina í Grímsey og mikið áhyggjuefni. Meira
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, undirritaði í dag, á degi íslenskrar náttúru, loftslagsyfirlýsingu Akureyrarbæjar og Festu - miðstöðvar um samfélagslega ábyrgð, ásamt forsvarsmönnum 19 annarra fyrirtækja og stofnana. Meira
„Okkur þykir þetta auðvitað mjög alvarlegt mál. Þetta er alvarlegt fyrir ferðaþjónustuna hérna á svæðinu, sérstaklega vetrarferðaþjónustuna.“ Meira
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, skorar á ríkisstjórnina og Isavia að setja kraft í uppbyggingu Akureyrarflugvallar þannig að opna megi aðra alvörugátt inn í landið. Meira
Formleg vígsla Vaðlaheiðarganga fór fram í dag en göngin voru opnuð fyrir umferð 21. desember. Formlegri vígslu lauk laust eftir klukkan 16 þegar tveir eldri borgarar sem búsettir eru í sveitarfélögunum beggja vegna ganganna klipptu á borðann. Meira
Vaðlaheiðargöng verða lokuð fyrir umferð frá kl. 8 til kl. 18 í dag vegna opnunarhátíðar. Göngin verða opnuð með formlegum hætti klukkan 16 og verður viðamikil dagskrá allan daginn af því tilefni. Meira
Ljósin voru kveikt á jólatrénu á Ráðhústorgi á Akureyri síðdegis. Tréð er að vanda gjöf frá vinabænum Randers í Danmörku og afhenti Helgi Jóhannesson, konsúll Dana á Akureyri og forstjóri Norðurorku, jólatréð formlega. Meira
Samkomulag um stofnun listsjóðsins Verðandi var undirritað í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í dag. Megintilgangur sjóðsins er að styrkja listafólk til að nýta Menningarhúsið Hof og Samkomuhúsið sem vettvang fyrir listsköpun sína. Meira