Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að víða sárni fólki í bændastéttinni umræða um að hækkandi vöruverð og verðbólga sé því að kenna. Meira
Lilja Alfreðsdóttir, menningar og viðskiptaráðherra, gefur lítið fyrir gagnrýni á þann tímapunkt þar sem tilkynnt var um hækkun listamannalauna. Meira
VR, Neytendasamtökin, Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) og Félag atvinnurekenda (FA) vara eindregið við samþykkt frumvarps um undanþágu afurðastöðva í kjötiðnaði frá samkeppnislögum, sem nú liggur fyrir Alþingi. Meira
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að nauðsynlegt sé fyrir Íslendinga að skoða hvers konar uppbygging atvinnuvega sé góð fyrir lífsgæði þjóðarinnar. Hann segir skorta langtímahugsun og setur spurningamerki við það vaxtarlíkan sem uppgangur ferðaþjónustunnar hefur skapað. Meira
Ákvörðun peningastefnunefndar, um að halda stýrivöxtum í 9,25%, olli Samtökum atvinnulífsins (SA) ákveðnum vonbrigðum. Þó undirstrikar ákvörðunin mikilvægi þess að opinberi vinnumarkaðurinn semji í anda almenna vinnumarkaðarins og að hagræðing verði í ríkisrekstri. Meira
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að þó gerðir hafi verið nýir kjarasamningar sem um margt hafi verið hóflegir, þá séu þeir einir og sér ekki nægjanlegir til að ná niður verðbólgu. Þá sagði hann algjörlega rétta hugsun í samningunum. Meira
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum verða því áfram 9,25%. Meira
Það vakti þó nokkra athygli í síðustu viku þegar fregnir bárust af því að einbýli við Mávanes 17 í Garðabænum hafi selst á 850.000.000 kr. Páll Pálsson, eigandi fasteignasölunnar Pálsson fasteignasala, segir einbýlið vera það langdýrasta sem selst hafi á Íslandi og telur það vera tímaspursmál hvenær fyrsta eignin muni seljast á yfir milljarð króna. Meira
„Nú erum við búin að gera kjarasamninga við öll stærstu stéttarfélögin og landssamböndin, það eru auðvitað fleiri samningar sem á eftir að gera, en það er búið að marka mjög skýra stefnu fyrir vinnumarkaðinn. Næstu fjögur árin - til hamingju með það!“ Meira
„Mér finnst merkileg þessi gagnrýni sem kemur frá stjórnarandstöðunni á fjármögnun aðgerðapakkans, í ljósi þess að þetta er risastórt efnahagsmál að kjarasamningar hafi náðst.“ Meira
Staða Grindvíkinga á húsnæðismarkaði er grafalvarleg, að mati Ásrúnar Helgu Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar í Grindavík. Meira
Hagsmunasamtök Grindvíkinga vilja helmingsafslátt af stimpilgjöldum fyrir Grindvíkinga, skattfrjálsa úttekt á uppsöfnuðum séreignarsparnaði til útborgunar og aðgengi að hlutdeildarlánum þó Grindvíkingar hafi átt fasteignir áður. Meira
„Í mínum huga er þetta ákveðinn léttir. Launaliðurinn er hóflegur fyrir þorra félagsmanna í þessum launþegahreyfingum, að minnsta kosti fyrir þá sem eru í meðallagi og þar fyrir ofan og hvað þá ef þetta verður speglað á aðra stóra launþegahópa.“ Meira
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segist finna fyrir bjartsýni nú þegar langtimasamningar eru í höfn hjá SA við fjölmenn stéttarfélög eins og Starfsgreinasambandið og Eflingu. Meira
„Þetta er mikill gleðidagur fyrir samninganefnd Eflingar,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, þegar mbl.is tók hana tali í Karphúsinu að lokinni undirskrift nýrra kjarasamninga hjá breiðfylkingu stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins. Meira
Ríkisstjórnin mun leggja fram 80 milljarða króna í aðgerðir á samningstíma stöðugleikasamningsins sem undirritaður var í Karphúsinu í dag. Meira
Einfalda þarf og afnema séríslenskar reglur sem eru íþyngjandi fyrir iðnað, rjúfa þarf kyrrstöðu í uppbyggingu virkjana og efla þarf innviði. Þetta er meðal þess sem ályktað var um á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins (SI) í dag. Meira
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, spurði fjármálaráðherra á Alþingi hvort ekki væri kominn tími til að ríkisstjórnin axli ábyrgð og sjái til þess að „snúið verði af þessari glötunarbraut grimmilegra vaxtahækkana áður en ástandið verður enn verra”. Meira
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir alveg ljóst að sveitarfélögin verði að gera sér fulla grein fyrir því að aðkoma þeirra að gerð kjarasamninga skiptir gríðarlegu máli, eða jafn miklu og aðkoma stjórnvalda. Meira
Stjórnvöld í Argentínu hafa ákveðið að leggja niður ríkisrekna fréttamiðilinn Telam í Argentínu vegna meintrar hlutdrægni. Meira