ÍBV hefur fengið tvo leikmenn lánaða frá liðum úr Bestu deildinni fyrir baráttuna í 1. deild karla í fótbolta en Eyjamenn féllu úr Bestu deildinni síðasta haust. Meira
Tindastóll hafnar í níunda og næstneðsta sæti Bestu deildar kvenna í knattspyrnu á komandi keppnistímabili, samkvæmt spá Morgunblaðsins og mbl.is. Meira
Keflavík hafnar í tíunda og neðsta sæti Bestu deildar kvenna í knattspyrnu á komandi keppnistímabili, samkvæmt spá Morgunblaðsins og mbl.is. Meira
„Við völtuðum yfir þá eins og planið var,“ sagði Þorsteinn Leó Gunnarsson, einn markahæsti leikmaður Aftureldingar eftir 35:24 sigur Aftureldingar á Stjörnunni í kvöld í átta liða úrslitum á Íslandsmótinu. Meira
Afturelding fer áfram í undanúrslit eftir 32:24, sigur á Stjörnunni í Mosfellsbæ í kvöld í oddaleik í átta liða úrslitum. Meira
„Ég er ánægð með að við náðum að laga stöðuna og við kláruðum þetta ágætlega,“ sagði Hildur Öder Einarsdóttir, markvörður ÍR, sem átti góðan leik þegar nýliðarnir töpuðu fyrir ÍBV, 22:18, í öðrum leik liðanna í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitil kvenna. Meira
Birna Berg Haraldsdóttir, einn af burðarásum handknattleiksliðs ÍBV, segir að það hafi verið lán í óláni fyrir liðið að vera án þriggja lykilmanna fyrri hluta keppnistímabilsins. Meira
Í kvöld ræðst hvert verður fjórða og síðasta liðið til að komast í undanúrslitin um Íslandsmeistaratitil karla í handknattleik. Meira
Viktor Jónsson skoraði fyrstu þrennu tímabilsins í Bestu deild karla í fótbolta og fyrstu þrennu Skagamanns í deildinni í átta ár þegar ÍA vann HK, 4:0, í annarri umferð deildarinnar í Kórnum í Kópavogi á sunnudaginn. Meira
ÍBV tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum úrslitakeppni Íslandsmóts kvenna í handknattleik með því að hafa betur gegn ÍR, 22:18, í öðrum leik liðanna í fyrstu umferð í kvöld. Meira
„Við erum ótrúlega takmarkaður þjóðflokkur,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson, fyrirliði ÍBV, í Punktalínunni eftir sigurinn gegn Haukum í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Íslandsmótsins í handknattleik á Ásvöllum í gær. Meira
„Það er eins og það sé bannað að sýna tilfinningar,“ sagði Stefán Rafn Sigurmannsson, fyrirliði Hauka, í Punktalínunni eftir tap liðsins gegn ÍBV í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði í gær. Meira
Dregið var til 32-liða úrslitanna í bikarkeppni karla í fótbolta núna í hádeginu í höfuðstöðvum Knattspyrnusambands Íslands. Meira
Í hádeginu verður dregið til 32-liða úrslitanna í bikarkeppni karla í fótbolta í höfuðstöðvum Knattspyrnusambands Íslands í Laugardal. Meira
Handknattleiksmaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson hefur lagt skóna á hilluna en síðasti leikur hans var með Haukum þegar þeir töpuðu öðrum leiknum gegn ÍBV í átta liða úrslitum Íslandsmótsins um helgina. Meira
Haukar eru komnir í sumarfrí eftir tap gegn ÍBV að Ásvöllum í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í handbolta. Meira
Kári Kristján Kristjánsson fyrirliði Íslandsmeistarar ÍBV var ánægður með þægilegan 37:31 sigur Eyjamanna á Haukum á Ásvöllum í dag. Meira
ÍBV er komið í undanúrslit Íslandsmóts karla í handbolta eftir 32:28 sigur á Haukum á Ásvöllum í dag og mæta aftur í Hafnarfjörðinn í næstu umferð en þá gegn deildarmeisturum FH. Meira
Karlalið FH í handbolta er komið í undanúrslit Íslandsmótsins eftir öruggan sigur á KA í dag. KA-menn eru komnir í sumarfrí. Leikurinn í dag var ansi sveiflukenndur. FH var með forustuna allan tímann en vann að lokum 25:19. Meira
Grótta sló Njarðvík út úr bikarkeppninni í fótbolta karla í dag, tveir leikmenn og aðstoðarþjálfari Njarðvíkur fengu rauð spjöld á lokamínútum leiksins Meira