„Þetta er svolítið eins og hin íslenska Von Trapp-fjölskylda,“ segir Soffía Karls, Voice-þátttakandi, um fjölskylduna sína, með hlátur í röddu. Systir hennar er engin önnur en söngdívan Guðrún Árný og sonur hennar, Karl Friðrik, keppti í þáttunum Dans Dans Dans og dansaði í Billy Elliott.