„Fólk er að brjóta sig, þetta eru leiðindabrot bæði á ökklum og höndum. Útlimabrot mikið en einnig höfuðhögg,“ segir Bryndís Guðjónsdóttir, deildarstjóri bráðadeildar LSH, þar sem álag hefur verið mikið vegna hálkuslysa. Klukkan 16 í dag höfðu á fjórða tug manns komið á deildina eftir hálkuslys.