„Þú notaðir líkama minn í sex ár fyrir eigin kynferðislegu fullnægju,“ sagði Kyle Stephens, sem var barnfóstra hjá fjölskyldu læknisins Larry Nassar við réttarhöldin yfir Nassar í gær. „Þetta er ófyrirgefanlegt,“ bætti Stephens við en hún er ein af rúmlega 100 fórnarlömbum hans.