Einn fremsti matreiðslumaður Frakka og rauninni allrar Evrópu, Paul Bocuse, er látinn 91 árs að aldri eftir langa og harða baráttu við parkinsons-veiki. Bocuse hefur verið nefndur páfi franska eldhússins og breytti landslaginu í eldhúsum landsins til frambúðar á áttunda áratug síðustu aldar með Nouvelle Cuisine.