Nýr búningur íslensku knattspyrnulandsliðanna hefur farið vel af stað að sögn verslunarstjóra Jóa útherja. Í gær var opið til kl. 20 til að mæta eftirspurn og fjöldi fólks hafði komið í morgun til að næla sér í treyju. Flestir eru ánægðir þótt einhverjir sakni rauðu línunnar sem var á gömlu treyjunni.