Jin Zhijian, nýr sendiherra Kína hér á landi, stundaði nám í íslensku við HÍ á seinni hluta níunda áratugarins. Hann flutti af landinu árið 1991 en kom aftur fyrir skömmu og tók við embættinu. Íslenskukunnáttan er ennþá góð en hann segir margt hafa breyst á þessum tíma, einangrunin sé mun minni.