Miklir skógareldar sem hafa ógnað íbúabyggð í Sydney um helgina eru væntanlega af mannavöldum og talið er að vísvitandi hafi verið kveikt í. Áströlsk yfirvöld hafa staðfest þetta. BBC greinir frá. Lögreglan í Sydney hefur nú skilgreint eldana sem glæpavettvang.