Með langa lafandi tungu og tilhneigingu til að slefa. Þannig er honum best lýst, enska bolabítnum Zsa Zsa sem varð þess heiðurs aðnjótandi um helgina að vera valinn ljótasti hundur í heimi. Keppnin fór fram í Petaluma í Kaliforníu og varð hörð að venju.