Forsætisráðherra Ítalíu, Giuseppe Conte, hefur lýst yfir 12 mánaða neyðarástandi í borginni Genúa eftir að hluti Morandi-brúarinnar hrundi í gær. 39 eru látnir og 15 eru alvarlega slasaðir. Leit stendur enn yfir í rústunum og verður henni haldið áfram næstu daga en óttast er að fleiri finnist ekki á lífi.