Verslunarmiðstöðin Smáralind var rýmd um hádegisbil vegna vatnsleka. Þetta staðfestir Sveinn Stefánsson, umsjónarmaður Smáralindar. Vatnsrör sem tengist brunakerfi Smáralindar fór í sundur um klukkan 11:15 á athafnasvæði verslana, sem er í kjallara í suðurhluta verslunarmiðstöðvarinnar.