Myndskeið náðist af strætisvagnstjóra í dag þar sem hann virðist vera að tala í síma undir stýri. „Þetta er náttúrulega stranglega bannað, þetta er lögbrot. Þegar við fáum svona ábendingar þá sendum við þær alltaf áfram á rétta aðila og þeir eru áminntir í starfi,“ segir upplýsingafulltrúi Strætó.