Eldsvoðinn í Laugarlækjarskóla í nótt olli talsverðum skemmdum á klæðningu í nýlegri byggingu. Mikil lykt er inni í skólanum og bókasafn og tölvuver skólans þurfa að loka tímabundið af þeim sökum sem setur ýmis verkefni í biðstöðu að sögn aðstoðarskólastjóra.