„Það er bara gaman að fá að spila á móti ríkjandi heimsmeisturum. Þetta verður skemmtilegur leikur og tækifæri fyrir okkur til að sjá hvar við stöndum á móti þeim,“ sagði Hörður Björgvin Magnússon léttur í bragði þegar mbl.is ræddi við hann eftir æfingu í Saint-Brieuc í Frakklandi í kvöld.