Jón Gunnarsson, íbúi við Hraunteig í Reykjavík, er ósáttur við framkvæmdir á lóð við hlið sinnar. Verið er að byggja einbýlishús þar en lóðin var hækkuð um meira en metra við framkvæmdirnar. „Maður horfir upp undir iljarnar á nágrannanum,“ segir Jón sem gagnrýnir vinnubrögð borgarinnar í málinu.