Vindhraði fellibylsins Mikaels er nú kominn í tæpa 65 metra á sekúndu, en hann er staddur rúma 100 kílómetra suð-suðvestur af Panamaborg og stefnir óðfluga á Flórída-ríki í Bandaríkjunum. Mikael er nú fjórða stigs fellibylur og sá öflugasti sem skollið hefur á norðvesturhluta Flórída.