„Þetta er að verða hátækniiðnaður og ég spái því að ungt fólk sem verður þreytt á því að sitja við tölvur muni sækja í þetta,“ segir Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri sýningarinnar Íslenskur landbúnaður 2018. Sýningin verður opin um helgina og er sú stærsta á þessu sviði í 50 ár að sögn Ólafs.