„Winter is coming,“ eða vetur kemur, sagði Baldur Borgþórsson, borgarfulltrúi Miðflokksins, á borgarstjórnarfundi í gær, þegar hann lagði til óháða úttekt á framkvæmdum við Hlemm. Þar vísaði hann til þess að fara þyrfti yfir mörg mál þar sem framúrkeyrsla í framkvæmdum borgarinnar yrði skoðuð.