Vegfarendur á Reykjanesbraut hafa gert athugasemdir við nýja ljósastaura sem settir hafa verið upp við veginn. Ljósið sé mjög skært við staurana en algert myrkur sé þess í milli. Svæðisstjóri hjá Vegagerðinni segir að tekin hafi verið meðvituð ákvörðun um að uppfylla ekki lýsingarstaðla.