Allt ætlaði um koll að keyra á blaðamannafundi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í kvöld þegar hann ræddi niðurstöðu þingkosninganna sem fram fóru landinu í gær. Forsetinn var léttur í lundu í byrjun fundarins og lýsti því yfir að hann hlakkaði til samstarfsins við demókrata í fulltrúadeildinni, sem náðu meirihluta í deildinni eftir nokkurt hlé.