Tala látinna í gróðureldunum sem nú geisa í Kaliforníuríki heldur áfram að hækka og er nú vitað til þess að 50 manns hið minnsta hafi látið lífið í eldunum, sem eru þeir mannskæðustu í sögu ríkisins. Vinda, sem hafa gert slökkviliðsmönnum erfitt um vik að ná stjórn á eldunum, er þó tekið að lægja.