„Við lítum á þetta sem náttúrulegan þátt í okkar starfsemi,“ segir Guðmundur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Eflu, sem var verðlaunað af Creditinfo fyrir samfélagslega ábyrgð í Hörpu í gær. Fyrirtækið hafi t.a.m. lagt mikinn metnað í átt að jafnlaunavottun að undanförnu.