Hundruð íbúa mexíkósku landamæraborgarinnar Tijuana hafa flykkst út á göturnar um helgina til að mótmæla komu þúsunda hælisleitenda frá Mið-Ameríku sem eru nú að reyna að komast yfir til Bandaríkjanna. Segjast þeir óttast að Bandaríkin loki landamæraleiðinni þar í gegn vegna hælisleitendanna.