Útför George H. W. Bush, 41. forseta Bandaríkjanna, fór fram í dómkirkjunni í Washington D.C. í dag. Bush lést 1. desember, 94 ára að aldri og verður hann jarðaður við hlið eiginkonu sinnar, Barbara, í Texas. Útförin hófst klukkan 9 að staðartíma og varði hún í rúma fjóra klukkutíma.