Reynt hefur á þolinmæði vegfarenda á leið til vinnu á Vesturlandsvegi í morgun. Snjókoma hefur gert það að verkum að umferðin hreyfist hægt og teygði biðröðin sig nánast að bæjarmörkunum í Mosfellsbæ í morgun. Mikil fjölgun íbúa í bænum að undanförnu hefur aukið umferðarálag á leiðinni.