Íbúar þorpsins Ukpwa í Kamerún eru aðeins 513 talsins og landbúnaður er lifibrauð þeirra. Þetta er fólk sem býr í sátt og samlyndi við náttúruna en nýverið réðst hópur manna inn í þorpið, drap búpening og kveikti í húsum. Akrar voru eyðilagðir og gengið í skrokk á fólki. Allt í nafni frelsis.