Tæplega eitt þúsund gestir fagna brúðkaupi ungs pars en augnabliki síðar eru 63 látnir og tæplega 200 særðir. Brúðkaup Mirwais Alami og Raihana var ákveðið með fremur skömmum fyrirvara og á boðskortinu stóð: „Við fögnum í heimi vonar og þrár.“ Vonir og þrár að engu orðnar.