Aðgerðir breskra stjórnvalda vegna gjaldþrots ferðaþjónustufyrirtækisins Thomas Cook eru afar víðtækar, en 155.000 breskir ferðamenn urðu strandaglópar í einni svipan er tilkynnt var í nótt að Thomas Cook hefði farið sína hinstu ferð. Bresk stjórnvöld munu í reynd gerast ferðafrömuðir næstu tvær vikurnar, til þess að koma sínu fólki heim.