„Ég er búin að pakka meðulum, vegabréfum, tölvu, síma og öðru,“ segir Sólveig Einarsdóttir sem býr á bóndabæ í Nýja Suður-Wales-fylki í Ástralíu þar sem miklir gróðureldar hafa logað undanfarnar vikur. Líkt og nágrannarnir er hún tilbúin að fara stefni gróðureldarnir á bæinn.